Viðskipti innlent

Sameinast um reglur fyrir deilihagkerfið

Sæunn Gísladóttir skrifar
París er vinsælasti áfangastðaur Airbnb-notenda.
París er vinsælasti áfangastðaur Airbnb-notenda. Fréttablaðið/AFP
Tíu af stærstu viðskiptaborgum heims stefna að því að skrifa í sameiningu reglubók fyrir deilihagkerfið til þess að setja fyrirtækjum eins og Airbnb og Uber skýrari reglur. Þannig geti borgirnar nýtt sér stærð sína til að koma á fót skýrari grundvallarreglum.

Fyrirtæki sem tengjast deilihagkerfinu hafa deilt við eftirlitsstofnanir, en oftast ríkja mismunandi reglur í hverri borg fyrir sig. Með nýrri reglubók sem myndi meðal annars ná til New York, Parísar, Seúl, Aþenu, Barcelona og Toronto myndi þetta breytast. Enn hafa engar reglur verið settar en fjöldi borgarfulltrúa hittist í fyrsta sinn í Amsterdam í síðasta mánuði til að ræða hugmyndina. Borgarfulltrúar Parísar vilja gefa út fyrstu reglubókina fyrir lok september.

„Það að leikið sé eftir mismunandi reglum á 20-30 stærstu mörkuðum heims gerir engum gott,“ er haft eftir Wiley Norvell, talsmanni New York borgar, í frétt Bloomberg um málið. „Við viljum að neytendur og ferðamenn standi frammi fyrir samræmdum reglum milli borga. Við viljum nýta stærð markaðanna sem er gífurleg, svo að raddir borganna muni hafa áhrif,“ segir Norvell.

Reglugerðir hafa verið stærsti þröskuldurinn fyrir aukinni þjónustu fyrirtækja eins og Airbnb og Uber. Bæði fyrirtækin hafa talað fyrir því að þau hafi jákvæð áhrif á borgir og séu atvinnuskapandi og hafa rætt við borgaryfirvöld um það að vera réttum megin við lögin.

Airbnb hefur átt ágætt samstarf við París, stærsta markað fyrirtækisins, með því að innheimta ferðamannaskatt fyrir hönd borgarinnar á notendur sína. Airbnb mun halda áfram að innheimta slíkan skatt í átján borgum til viðbótar í Frakklandi frá og með ágúst. Ian Brossat, borgarfulltrúi í París, segir í samtali við Bloomberg að þetta sé jákvæð þróun. Hins vegar geti forsvarsmenn Airbnb ekki „keypt“ borgaryfirvöld með einum né neinum hætti. Þau muni halda áfram vinnu til að sporna gegn því að heilu hverfin fari í útleigu til ferðamanna. Frönsk yfirvöld vilja auk ferðamannaskattsins leggja skatt á tekjur af útleigu íbúða í gegnum Airbnb.

Brossat segir nauðsynlegt að vera með reglugerð í deilihagkerfinu þar sem komið sé að lokahnykknum í baráttunni við deilihagkerfið. Almenningur sé farinn að skilja að þörf sé á úrræðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×