Lífið

Samdi lög við gömul ástarljóð afa síns

Anna María Björnsdóttir
Anna María Björnsdóttir Visir/Daniel Karlsson
Tónlistarkonan Anna María Björnsdóttir hefur gefið út plötuna Hver stund með þér, ásamt Svavari Knúti.

Á henni má finna lög sem hún samdi við ástarljóð sem afi hennar, Ólafur Björn Guðmundsson, samdi til ömmu hennar, Elínar Maríusdóttur. „Hann orti öll þessi ljóð til hennar yfir sextíu ára tímabil, alveg frá því þau kynntust og þangað til þau voru orðin gömul. Það höfðu fáir í fjölskyldunni séð þau og hann leyfði okkur ekki að sjá þau fyrr en löngu seinna,“ segir Anna María.

Þá hafi afi hennar tekið sig til og skrifað upp öll ljóðin inn í tölvu svo þau myndu varðveitast. Anna segir að þau hjónin hafi alltaf verið jafn ástfangin, alveg fram á síðasta dag, en þau létust með árs millibili. Anna segir það gaman að skoða fyrstu ljóðin sem fjalla um framtíð þeirra saman og svo þessi yngri, þegar hann er meira að þakka henni fyrir allan þann tíma sem þau hafi átt saman.

„Það er svo gaman að sjá ljóðin sem hann skrifaði fyrst þegar þau eru ung og nýbúin að kynnast og svo ljóðin sem hann skrifar þegar hann er orðinn gamall, hvað ástin er enn til staðar og hvað hann ber enn sömu tilfinningar til hennar,“ segir hún og bætir við: „Hann horfði alltaf á hana með sömu aðdáunaraugum.“

Aðspurð hvort hún eigi sér eftirlætisljóð eftir afa sinni, segir hún erfitt að gera upp á milli þeirra. „Þau eru eiginlega öll í uppáhaldi á sinn hátt, en ljóðið Eitt lítið ljóð finnst mér þó sérstakega fallegt,“ segir hún.

Er þetta önnur sólóplata Önnu, og sú fjórða í heildina, en hún hefur gefið út tvær plötur með Norrænu spunasönghljómsveitinni IKI í Danmörku.

Fimmtudaginn 12. mars klukkan 20.00 verða haldnir útgáfutónleikar í Salnum í Kópavogi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×