Saman erum við STERK gegn vændi

Fréttablaðið Aðsendar greinar 26. nóvember 2011 09:15
Kristbjörg Kona STERK, samtök gegn mansali.
Kristbjörg Kona STERK, samtök gegn mansali.
Kristbjörg Kona skrifar:
Þrátt fyrir að langflestir karlmenn kaupi aldrei vændi er vændismarkaðurinn stór hér heima og erlendis. Norrænar rannsóknir sýna að 14% danskra karla og 13% norskra karla 18 ára og eldri kaupi eða hafi keypt vændi einhvern tímann á ævinni. Svipaðar tölur voru einnig í Svíþjóð áður en Svíar bönnuðu vændiskaup 1999.

Engin íslensk rannsókn hefur verið gerð á umfangi vændiskaupa hér á landi. Þó er að finna vísbendingu í rannsókn sem Landlæknisembættið lét gera um alnæmi á Íslandi 1991. Þar var fólk spurt hvort það hefði sofið hjá manneskju sem seldi sig. 16% karla höfðu gert slíkt.

Viðhorf alþjóðasamfélagsins til vændis hefur breyst mikið undanfarin ár vegna aukinnar vitundar um mansal og órjúfanleg tengsl þess við vændi. Mansal getur nefnilega ekki þrifist nema til sé markaður fyrir vændi, klám og hvers konar kynlífsþjónustu. Rannsóknir á vændi á Norðurlöndunum síðustu 50 árin hafa leitt í ljós að þeir sem stunda vændi gera það í langflestum tilfellum af neyð. Miklar líkur eru á því að einstaklingar í vændi verði fyrir ofbeldi og niðurlægingu og oft festast þeir í skipulagðri glæpastarfsemi þar sem réttindi þeirra eru virt að vettugi.

Í gegnum tíðina hefur umræðan um vændi snúist um vændiskonuna og að það sé hún sem skapi vandamálið og tæli kaupandann. Með aukinni þekkingu á málaflokknum hefur umræðan snúist meira og meira að vændiskaupandanum sem vinnuveitanda vændis, þeim sem skapar vændi og heldur því við.

Rannsóknir sýna okkur að kaupendur vændis eru nær eingöngu karlar og að þeir kaupa vændi af mörgum ólíkum ástæðum. Rannsóknir í Noregi og Danmörku benda til þess að þeir sem kaupi vændi að staðaldri missi yfirleitt áhugann á konum sem ekki séu í vændi. Almenn virðing fyrir konum og réttindum þeirra minnkar og vændiskaupendur eru mun líklegri til að beita maka sína ofbeldi. Rannsóknir frá Bretlandi sýna að því yngri sem kaupendur eru þegar þeir kaupa vændi í fyrsta skiptið, þeim mun líklegra er að þeir verði háðir vændiskaupum.

Norrænar rannsóknir sýna að langstærsti hluti vændiskaupenda kaupir vændi einu sinni til þrisvar sinnum. Nýleg dönsk rannsókn sýnir að 80% þeirra sem hafa keypt vændi í Danmörku gera það vegna þess að „það var eitthvað sem þeir urðu að prófa“. Þessir vændiskaupendur hætta vegna þess að vændið stendur ekki undir væntingum þeirra. Þessi kúnnahópur, „fiktararnir“, er gríðarlega stór og er óhætt að segja að í krafti fjölda síns séu þeir undirstaða vændismarkaðsins.

Margir vilja meina að það sé ógerlegt að útrýma vændiskaupum og því sé engin ástæða að reyna. Því fer fjarri lagi. Vændiskaupendur eru nágrannar þínir, besti vinur þinn, pabbi þinn, bróðir eða einhver sem þú metur mikils. Þeir kaupa sér vændi af mörgum ólíkum ástæðum, en það sem þeir eiga sameiginlegt er að þeir hafa litla sem enga fræðslu fengið um raunverulegt eðli vændis og afleiðingar þess. Samfélagið segir þeim að vændi sé elsta starfsgrein í heimi og þeir geti ekkert gert til að breyta því. Karlmenn eru þannig gerðir ábyrgðarlausir á gerðum sínum.

Með vændiskaupum sínum viðhalda karlmenn eftirspurn eftir kynlífi fyrir peninga og skipulögðum markaði af fólki til sölu, oftast konum og börnum. Beint framhald af því er síðan mansal, þar sem hundruð þúsunda kvenna og barna ganga kaupum og sölum aðeins til þess að ákveðnir karlar fái að svala hvötum sínum og forvitni.

Nýleg lög sem banna kaup á vændi eru til mikilla bóta. Þau eiga að koma í veg fyrir að Ísland verði ákjósanlegur áfangastaður fyrir skipuleggjendur mansals, þau færa ábyrgðina yfir á vændiskaupandann og þau kenna næstu kynslóðum ný gildi. Þessi lög gefa skýr skilaboð um að fólk eigi ekki að vera til sölu. Vöntun á eftirfylgni, fjármagni í fræðslu, forvarnir og rannsóknir hjá m.a. lögreglu leiða þó til þess að lögin eru enn sem komið er bitlaus og skila ekki áætluðum tilgangi.

Fáfræði og áhugaleysi vinnur gegn framförum. Við getum dregið úr vændiskaupum með því að breyta hugarfarinu gagnvart vændi, fólki í vændi og síðan vændiskaupendum. Við þurfum að taka ábyrgð á því viðhorfi sem hefur ríkt gagnvart vændi. Við þurfum að dusta rykið af réttlætiskennd okkar, fræða og treysta fólki til að taka upplýsta afstöðu um vændiskaup. Við þurfum forvarnir og fræðslu í skólana þar sem ungu fólki er veitt mótvægi við klámvæðinguna sem einkennir samfélag okkar.
STERK – forvarnamiðstöð stendur nú fyrir myndbandasamkeppni þar sem leitað er að forvarnamyndbandi sem stuðlar að upplýstri umræðu um vændiskaup og mansal á Íslandi og þar sem sjónum er beint að vændiskaupendum. Markmið er því að fækka vændiskaupum á Íslandi. Skilafrestur er 10. desember og tvenn verðlaun verða veitt, 300 þúsund krónur og 400 þúsund krónur. Áhugasömum er bent að skoða heimasíðu STERK, www.sterk.is.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Saman erum við STERK gegn vændi