Tónlist

Saman á túr í sumar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þetta tónleikaferðalag verður eitthvað.
Þetta tónleikaferðalag verður eitthvað. Vísir/Getty
Stjörnuparið Beyoncé og Jay Z ætla að fara á tónleikaferðalag saman í sumar. Til stendur að þau haldi tuttugu tónleika víðs vegar um Bandaríkin en tónleikaferðalagið hefst í júní. Samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly byrja hjónin að æfa sig um miðjan maí. Þá er því einnig haldið fram að einir tónleikar verði í New York á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna, 4. júlí.

Þó parið hafið unnið að ýmsum lögum saman, til dæmis Crazy in Love og Drunk in Love en þetta verður þeirra fyrsta tónleikaferðalag saman.

Beyoncé og Jay Z vöktu verðskuldaða athygli þegar þau komu saman fram á Grammy-verðlaunahátíðinni fyrir stuttu enda var það atriði sjóðheitt svo vægt sé til orða tekið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×