Erlent

Sama stefnan áfram

Salman konungur Arftakinn er 79 ára hálfbróðir hins látna.fréttablaðið/AP
Salman konungur Arftakinn er 79 ára hálfbróðir hins látna.fréttablaðið/AP
Sádi-Arabía Salman bin Abdul-Aziz al Saud tók í gær við konungstign í Sádi-Arabíu eftir að hálfbróðir hans, Abdúllah konungur, lést níræður að aldri.

Salman gaf strax út yfirlýsingu um að áfram yrði haldið á sömu braut og hingað til: „Við munum áfram fylgja þeirri réttu stefnu sem Sádi-Arabía hefur fylgt frá stofnun,“ sagði hann.

Eitt af fyrstu verkum Salmans konungs var svo að taka ákvörðun um að arftaki hans yrði annar hálfbróðir þeirra, Muqrin, sem verður sjötugur á þessu ári. Muqrin er yngsti eftirlifandi sonur ættföðurins Ibn Sauds, sem var fyrsti konungur Sádi-Arabíu og ríkti frá árinu 1932 til 1953.

Salman er sjálfur nýorðinn 79 ára, og þar með níu árum eldri en Abdúllah var þegar hann tók við völdum fyrir tuttugu árum. Alls eignaðist Ibn Saud 45 syni með 22 eiginkonum, en 36 þessara sona komust til fullorðinsára. Ibn Saud eignaðist auk þess fjölmargar dætur.

Í bandalagi með strangtrúðum múslimum

Saud-fjöskyldan hefur ráðið ríkjum í Sádi-Arabíu frá árinu 1932, og haldið þessum völdum ekki síst í krafti olíuauðs fjölskyldunnar, en olía fannst í Sádi-Arabíu árið 1938.

Hin stoðin undir veldi Saud-fjölskyldunnar hefur verið bandalag hennar við strangtrúaða múslima, sem hafa allra náðarsamlegast látið það eiga sig að gera uppreisn gegn henni þótt ekki séu þeir sagðir beinlínis sáttir við lifnaðarhætti hennar.

Hinir strangtrúuðu hafa verið til friðs vegna örlætis Saud-fjölskyldunnar gagnvart þeim, en olíuauðurinn hefur óspart verið notaður til að styrkja trúarstarfsemi hinna heittrúðu, bæði í Sádi-Arabíu sjálfri og utan hennar.

Löggjöfin fyrirmynd al-Kaída og Íslamska ríkið.

Hugmyndafræði hinna heittrúuðu Sádi-Araba hefur ráðið ríkjum meðal annars í strangri refsilöggjöf landsins, sem jafnan vekur furðu á Vesturlöndum þegar fréttir berast af opinberum aftökum og limlestingum. Þessi sama hugmyndafræði hefur einnig orðið ein helsta fyrirmynd herskárra íslamistahreyfinga á borð við talibana, al-Kaída og Íslamska ríkið.

Fjölmargir þjóðhöfðingjar og stjórnmálaleiðtogar hafa lýst yfir samúð sinni og söknuði vegna fráfalls Abdúllah, þar á meðal bandarískir ráðamenn á borð við Barack Obama forseta, John Kerry utanríkisráðherra, Chuck Hagel varnarmálaráðherra og George W. Bush, fyrrverandi forseta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×