Sport

Sam tekur þátt í Dancing with the Stars

Sam á örugglega eftir að skemmta sér vel í þættinum.
Sam á örugglega eftir að skemmta sér vel í þættinum. vísir/getty
Fyrsti homminn sem hefur verið valinn í nýliðavali NFL-deildarinnar, Michael Sam, er ekki af baki dottinn.

Hann komst ekki lengra en í æfingahóp hjá St. Louis og Dallas á nýliðnu tímabili í NFL-deildinni og á því enn eftir að spila leik þar. Sjálfur er hann á því að hann væri búinn að spila í deildinni ef hann væri ekki samkynhneigður.

Sam er ekki enn kominn að hjá öðru félagi en ætlar að halda áfram að berjast.

Í millitíðinni mjólkar hann frægðina í dansþættinum Dancing with the Stars. Það var tilkynnt í dag að Sam verði í þættinum.

Á meðal annarra þátttakenda eru fimleikastúlkan, Nastia Lukin, en hún vann gull á ÓL, og söngkonan Patti LaBelle.

NFL-leikmenn hafa löngum gert það gott í þessum þætti og þeir Emmitt Smith, Donald Driver og Hines ward hafa allir unnið.

NFL

Tengdar fréttir

Oprah frumsýnir mynd um Michael Sam

Michael Sam er kannski ekki með samning við lið í NFL-deildinni en Oprah Winfrey er samt búin að gera heimildarmynd um hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×