Sport

Sálfræðistríð Svíans virkaði ekki á heimsmeistarann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fanney heimsmeisatri í bekkpressu.
Fanney heimsmeisatri í bekkpressu. vísir/daníel
„Ég held að hver titill komi alltaf á óvart,“ sagði Fanney Hauksdóttir af hlédrægni þegar Fréttablaðið heyrði í henni í gær þar sem hún var enn stödd í Suður-Afríku þar sem hún varð heimsmeistari í klassískri bekkpressu á fimmtudaginn.

„Þegar ég sá skráninguna inn á mótið þá gerði ég mér vonir um að komast á pall og það var markmiðið. Ég hélt að við værum tvær að fara að berjast um titilinn. Ég bjóst alls ekki við því að vinna þetta í fyrstu lyftu,“ sagði Fanney.

„Það er ótrúlega gaman að vera orðin heimsmeistari,“ sagði Fanney en hún hafði áður orðið heimsmeistari ungmenna og Evrópumeistari. Hún vann silfur á HM í bekkpressu með búnaði í apríl en núna gerði hún enn betur mánuði síðar.

„Maður getur ekki alltaf unnið en það var mjög gaman að geta farið á annað mót og tekið þá gullið. Það er alltaf gaman að taka gull en silfrið er mjög gott líka,“ sagði Fanney kát.

„Pabbi var þarna á hliðarlínunni að hvetja mig áfram og kærastinn minn var líka þarna. Ísland var kannski ekki með stærsta liðið en við náðum samt að hafa gaman og búa til stemningu. Það var frábært að hafa þá með,“ sagði Fanney.

Fanney vann öruggan sigur á hinni sænsku Karolinu Arvidson sem virtist vera að reyna að taka okkar stelpu á taugum.

„Fyrsta lyftan gaf mér titilinn. Hún var nefnilega aðeins að spila með okkur sú sem varð í öðru sæti. Hún lét vita að hún ætlaði að byrja miklu hærra og við vorum því orðin frekar stressuð. Svo bara lækkaði hún niður og barðist um annað sætið,“ segir Fanney. Hún hefur öðlast mikla reynslu síðustu ár en það tekur samt alltaf á andlega að keppa á svona stórmóti.

„Ég held að ég fái aðeins meira sjálfstraust með hverju mótinu en þetta er samt alltaf stress. Þetta er samt bara meira spennandi. Maður vill ekki klúðra því maður er búinn að æfa í marga mánuði og langar að geta sýnt það sem maður getur. Það fylgir þessu því alltaf fiðrildi í maganum,“ segir Fanney.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×