LAUGARDAGUR 18. MAÍ NÝJAST 11:30

Benitez tekur ekki við Everton

SPORT

Sálarrokk úr Suðurríkjum

Fréttablaðið Tónlist 03. maí 2012 16:00
Brittany Howard og gítarleikarinn Heath Fogg úr Alabama Shakes.
Brittany Howard og gítarleikarinn Heath Fogg úr Alabama Shakes. NORDICPHOTOS/GETTY
Bandaríska hljómsveitin Alabama Shakes hefur vakið mikla athygli að undanförnu fyrir grípandi Suðurríkjarokk sitt. Fyrsta platan er nýkomin út.

Hljómsveitin hefur vakið athygli með lagi sínu Hold On sem hljómar óneitanlega eins og eitthvað sem Kings of Leon hefði getað sent frá sér. Þetta Suðurríkja-sálarrokklag er tekið af fyrstu plötu sveitarinnar, Boys & Girls, sem kom út í síðasta mánuði.

Alabama Shakes var stofnuð í menntaskóla í Aþenu í Alabama. Söngkonan Brittany Howard, sem hafði lært á gítar nokkrum árum áður, spurði bassaleikarann Zac Cockrell hvort hann vildi spila með henni. Þau byrjuðu að hittast eftir skóla og semja saman. Trommarinn Steve Johnson vann í einu plötubúðinni í bænum og Howard frétti af því að hann kynni að spila á trommur. Hún bauð honum í hljómsveitina og þau héldu áfram að þróa hljóm sinn.

Tríóið fór í hljóðver og tók upp nokkur prufulög. Gítarleikarinn Heath Fogg, sem hafði gengið í sama skóla og þau, heyrði lögin og bauð þeim að hita upp fyrir hljómsveitina sína. Það gerðu þau með því skilyrði að hann spilaði með þeim og eftir það gekk hann til liðs við bandið. Tónleikarnir gengu mjög vel og eftir þá bættust nokkur tökulög við tónleikadagsskrána eftir Led Zeppelin, James Brown, Otis Redding og AC/DC.

Á þessum tíma kallaði hljómsveitin sig einfaldlega The Shakes. Næst á dagskrá var að drífa sig til Nashville í hljóðver. Þar spilaði sveitin einnig í plötubúð við góðar undirtektir og eftir að tónlistarbloggari setti lagið You Ain"t Alone á vefsíðuna sína hrúguðust inn tölvupóstar til Howard daginn eftir frá útgáfufyrirtækjum og umboðsmönnum.

Nafninu var breytt í Alabama Shakes, sveitin fór í tónleikaferð með Drive-By Truckers og fyrsta smáskífulagið Hold On leit dagsins ljós í djammi á miðjum tónleikum. Í október í fyrra spilaði hljómsveitin á CMJ-hátíðinni í New York-borg og fengu tónleikarnir frábæra dóma hjá New York Times.

Núna er fyrsta platan komin út og náði hún þriðja sæti breska vinsældarlistans og því áttunda á þeim bandaríska. Alabama Shakes verður á tónleikaferðalagi um Evrópu og Bandaríkin í sumar. Hún spilar á öllum helstu hátíðunum, þar á meðal Hróarskeldu, Rock Werchter, Lollapalooza og Bestival, og á vafalítið eftir að heilla tónleikagesti upp úr skónum með einlægu Suðurríkjarokki sínu.

freyr@frettabladid.is

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Tónlist 16. maí 2013 16:00

Skemmtileg lög um tilfinningar og dauða

Sjötta plata The National, sem tók þátt í gjörningi listamannsins Ragnars Kjartanssonar í New York í byrjun maí, kemur út eftir helgi. Meira
Tónlist 14. maí 2013 20:00

Þungarokksfræði í háskólanum

"Námið er hluti af gráðu, svo það verður strangt. Þungarokk hefur sjaldan verið tekið alvarlega. En það er bara menningarleg túlkun,“ segir höfundur námsleiðarinnar. Meira
Tónlist 13. maí 2013 15:00

Úr ferskeytlum í rapp

"Ég fór um bekki hér og þar og kenndi börnum að semja ljóð. Ég byrjaði á því að láta þau finna orð sem þeim þóttu falleg og svo unnu þau út frá þeim. Meira
Tónlist 13. maí 2013 09:30

Creed valin versta hljómsveit tíunda áratugarins

Lesendur Rolling Stone völdu tíu verstu hljómsveitirnar. Meira
Tónlist 13. maí 2013 07:00

Breikdans við klassíska tóna

"Hópurinn er margfaldur heimsmeistari í breikdansi og þau tvinna saman breikdans og klassíska tónlist í þessu atriði. Þetta er mjög skemmtilegt og heillar breiðan aldurshóp,“ segir Sóley Kristjá... Meira
Tónlist 11. maí 2013 17:41

XXX Rottweiler hundar frumsýna nýtt myndband

"Lagið er sönnun á því hvernig fullkomið lýðræði virkar, það eru allir í öllu, Rottweiler er bara kommúnistasjitt,“ segir Erpur Eyvindarson rappari en hin goðsagnakennda rappsveit, XXX Rottweile... Meira
Tónlist 09. maí 2013 10:00

Warwick með tónleika í júní

Dionne Warwick stígur á svið í Eldborgarsal Hörpu 19. júní. Hún er ein þekktasta söngkona popptónlistarsögunnar. Meira
Tónlist 09. maí 2013 10:00

Yo La Tengo á Airwaves

Bandaríska índírokksveitin Yo La Tengo hefur bæst við dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves sem verður haldin í fimmtánda sinn í haust. Meira
Tónlist 08. maí 2013 14:23

ESB tónleikar í tilefni af Evrópudeginum

Í tilefni Evrópudagsins 2013 stendur Evrópustofa – upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi – fyrir hátíðartónleikum í Eldborgarsal Hörpu, laugardaginn 11. maí með Ungsinfóníu Evrópusambandsins og ... Meira
Tónlist 08. maí 2013 08:00

Sigurtextinn fluttur

Mosi frændi spilar á sínum fyrstu tónleikum í 4 ár. Meira
Tónlist 06. maí 2013 21:44

Spiluðu sama lagið 105 sinnum í röð

Bandaríska hljómsveitin The National stóð sig prýðilega í gjörningi Ragnars Kjartanssonar. Meira
Tónlist 04. maí 2013 14:00

Hvolpaást skoðað 10.000 sinnum

Myndband rapparans Emmsjé Gauta og Larry BRD ásamt Unnsteini Manuel við lagið Hvolpaást hefur verið skoðað tíu þúsund sinnum á síðunni Youtube síðan það kom út fyrir tveimur vikum. Meira
Tónlist 02. maí 2013 11:00

Gerðu myndband fyrir vinsæla danska sveit

"Þeir höfðu samband við okkur og við ákváðum að gera myndband á Íslandi enda eru þeir aðdáendur landsins.“ Meira
Tónlist 02. maí 2013 16:00

Næsta plata árið 2015

Lars Ulrich, trommari Metallica, segir ólíklegt að ný plata með hljómsveitinni komi fyrr en árið 2015. Síðasta plata sveitarinnar, Death Magnetic, kom út 2008. Meira
Tónlist 02. maí 2013 15:00

Ný söngleikjadeild stofnuð

"Íslendingar eru tónelskir. Við erum rosalega spennt fyrir þessu og hvetjum fólk til að koma í prufuna,“ Meira
Tónlist 02. maí 2013 13:00

Hápunktur hjá þungarokkurum

Dimma og Sólstafir verða með sameiginlega tónleika í Austurbæ á fimmtudag. Dimma gaf út plötuna Myrkraverk á síðasta ári sem hlaut fínar viðtökur. Fjögur lög af henni hafa komist á vinsældarlista Rása... Meira
Tónlist 02. maí 2013 09:00

Hjálmar starfa með Erlend Øye

Hjálmar og hinn þekkti norski tónlistarmaður Erlend Øye úr hljómsveitunum Kings of Convenience og The Whitest Boy Alive eru að vinna saman að nýrri plötu. Upptökum er í þann mund að ljúka hér á landi. Meira
Tónlist 30. apríl 2013 13:00

Extreme Chill í fjórða sinn

Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival – Undir jökli verður haldin í fjórða sinn helgina 12.-14. júlí á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls. Í ár koma um tuttugu íslenskir tónlista... Meira
Tónlist 22. apríl 2013 13:30

Emilíana mætt til Íslands með nýju plötuna

Emilíana Torrini er komin til landsins og er með eintak af væntanlegri plötu sinni í farteskinu. Meira
Tónlist 20. apríl 2013 11:00

Plötusalan aukaatriði

Marcus Mumford úr hljómsveitinni vinsælu Mumford & Sons segir að plötusala skipti sveitina ekkert alltof miklu máli. "Við höfum beðið umboðsmanninn okkar um að láta okkur ekki vita hvernig plötusalan ... Meira
Tónlist 19. apríl 2013 16:00

Svona hljómar Ásgeir Trausti á ensku

Hlustaðu á Ásgeir Trausta syngja lagið Heimförin á ensku í meðfylgjandi myndskeiði. Meira
Tónlist 18. apríl 2013 12:00

Fleiri erlendir listamenn boða komu sína

Það styttist í tónleikahátíðina Keflavík Music Festival sem verður haldin 7.-10. júní. Hefur nú verið greint frá komu þriggja erlendra atriða í viðbót. Meira
Tónlist 18. apríl 2013 13:00

Nýdönsk með árlega tónleika

"Eftir 25 ára afmælistónleikana í fyrra helltist yfir okkur löngun til að gera þetta aftur að ári. Þetta var svo einstök upplifun“, segir Jón Ólafsson, meðlimur í hljómsveitinni Nýdönsk. Hljómsv... Meira
Tónlist 18. apríl 2013 12:00

Forsala hafin á Sónar

Í dag hefst forsala á tónlistarhátíðina Sónar Reykjavík sem fer fram dagana 13. til 15. febrúar 2014 í Hörpu. Takmarkað magn miða verður í sölu á sérstöku verði, en þriggja daga miðar verða á 12.900. ... Meira
Tónlist 18. apríl 2013 09:00

Þjálfari með útvarpsþætti um íslenska tónlist

"Ég er algert tónlistarnörd, þetta kemur í staðinn fyrir golfið hjá mér,“ segir Gunnlaugur Jónsson knattspyrnuþjálfari, sem síðustu mánuði hefur verið að undirbúa útvarpsþætti um íslenska tónlis... Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Tónlist / Sálarrokk úr Suðurríkjum
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000