Lífið

Sala á Göngum saman nistum hefst á morgun

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hulda Bjarnadóttir, Brynja Baldursdóttir, Birna Einarsdóttir  og Gunnhildur Óskarsdóttir.
Hulda Bjarnadóttir, Brynja Baldursdóttir, Birna Einarsdóttir og Gunnhildur Óskarsdóttir.
Göngum saman fagnar 10 ára afmæli í ár og af því tilefni er ýmislegt á döfinni hjá samtökunum.

Hlín Reykdal hefur hannað nisti í tveimur litum sem verða seld á næstu dögum til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini.

Omnom verður með sérstakan súkkulaðiglaðning í apríl, Hildur Yeoman hannar boli og fleira fyrir mæðradagsgönguna 14. maí  og Landsamband bakameistara leggur félaginu lið með sölu á brjóstabollum mæðradagshelgina eins og undanfarin ár. Í haust er svo fyrirhugað afmælismálþing félagsins.

Styrktarfélagið Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og hefur veitt íslenskum vísindamönnum 70 milljónir í styrki frá upphafi. Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar og vikulegar göngur félagsins eru opnar öllum áhugasömum. Upplýsingar um stað og stund er að finna á heimasíðu samtakanna gongumsaman.is og á facebook síðu félagsins.

Salan á nistunum hefst laugardaginn 18. mars klukkan 15:00 með gleðistund í verslun Hlínar á Fiskislóð 75. Nistin verða seld hjá Hlín í tvær vikur, eða meðan birgðir endast. Einnig er tekið við pöntunum í gegnum skilaboð á Facebook síðu félagsins ef fólk vill fá nisti í póstkröfu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×