Innlent

Saksóknari tók 554 daga í að ákveða sig: Sigmundur segist bregðast fljótt við

Jón Hákon Halldórsson skrifar
"Ég mun fara yfir erindi ríkissaksóknara og bregðast við því á viðeigandi hátt, eins fljótt og kostur er,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
"Ég mun fara yfir erindi ríkissaksóknara og bregðast við því á viðeigandi hátt, eins fljótt og kostur er,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson dómsmálaráðherra mun að öllum líkindum setja nýjan ríkissaksóknara í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. „Ég mun fara yfir erindi ríkissaksóknara og bregðast við því á viðeigandi hátt, eins fljótt og kostur er,“ segir hann í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins.

Erla Bolladóttir og Ragnar Aðalsteinsson ræddu málið skömmu eftir ákvörðun ríkissaksóknara í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.

Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari lýsti sig í gær vanhæfa til þess að fjalla um endurupptökubeiðni Erlu Bolladóttur og Guðjóns Skarphéðinssonar í bréfi sem hún sendi dómsmálaráðherra. Ástæðan er sú að Örn Höskuldsson, sem var einn af rannsakendum málsins, er kvæntur móðursystur Sigríðar.

Starfshópur á vegum innanríkisráðherra skilaði skýrslu um Guðmundar- og Geirfinnsmálið 25. mars 2013, eða fyrir 554 dögum. Fáeinum dögum seinna spurði Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari sakborningana um afstöðu þeirra til mögulegrar endurupptöku.

„Hún er búin að vera að vinna í málinu sem saksóknari allt frá þeim tíma,“ segir Erla í samtali við Fréttablaðið.

Hún velti því fyrir sér hvers vegna Sigríður komist að þessari niðurstöðu nú og hvers vegna það hafi tekið svo langan tíma að komast að henni. Hún segist jafnframt velta því fyrir sér hvort Sigríður hafi í millitíðinni rætt málin við Örn Höskuldsson. „Þetta eru spurningar sem vakna hjá mér,“ segir hún.


Tengdar fréttir

Ríkissaksóknari krefur sérstakan saksóknara skýringa á hlerunum

Ríkissaksóknari mun fara fram á skýringar frá sérstökum saksóknara hvers vegna ákæruvaldið hafi notað sönnunargögn sem aflað var með ólögmætum hætti. Ríkissaksóknari mun að því búnu meta hvort efni séu til frekari aðgerða að hálfu embættisins.

Dráttur á rannsókn getur létt refsinguna

Maður sem beðið hefur í fjögur ár eftir að rannsókn á fjársvikamáli sem hann tengist ljúki segist óvinnufær vegna biðarinnar. Enn er beðið og málið ekki komið til saksóknara. Eigur mannsins og konu hans hafa verið frystar frá árinu 2010.

Aðför að réttarríkinu að beita sönnunargögnum sem aflað er ólöglega

Ragnar Aðalsteinsson sem hefur sinnt verjendastörfum í sakamálum í meira en hálfa öld og sérhæft sig í mannréttindum segir það aðför að réttarríkinu þegar ákæruvaldið notar sönnunargögn sem aflað er með ólögmætum hætti. Sérstakur saksóknari braut lög þegar hann hleraði samtöl verjenda og skjólastæðinga í Ímon-málinu.

Ákvörðun ríkissaksóknara mikil vonbrigði

„Það er eitthvað meira að gerast en bara það sem er að gerast í dag,“ segir Erla Bolladóttir en ríkissaksóknari lýsti sig vanhæfa til að fjalla um endurupptöku Guðmundar og Geirfinnsmálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×