Viðskipti innlent

Saksóknari mótmælti skýrslutökum í Al-Thani málinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hreiðar Már Sigurðsson hlaut fimm og hálfs árs fangelsisdóm í héraði. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar.
Hreiðar Már Sigurðsson hlaut fimm og hálfs árs fangelsisdóm í héraði. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar. Vísir/Vilhelm
Björn Þorvaldsson hjá sérstökum saksóknara lagði fram greinagerð í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þar sem hann mótmælti því að lögmenn Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, og Ólafs Ólafssonar fjárfestis fengu að kalla til ný vitni í skýrslutöku áður en Al-Thani málið verður tekið til meðferðar í Hæstarétti. Hreiðar Már var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi og Ólafur í þriggja og hálfs árs fangelsi í desember 2013. Áfrýjuðu þeir dómnum til Hæstaréttar líkt og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sem hlaut fimm ára fangelsi og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, sem fékk þriggja ára dóm. 

Þórólfur Jónsson, lögmaður Ólafs, fer fram á að Eggert J. Hilmarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Kaupþings í Lúxemborg, verði kallaður aftur til vitnistöku. Í samtali við Vísi segir Þórólfur sérstakan ekki hafa upplýst um það við meðferð málsins í héraði að Eggert sætti sjálfur rannsókn sem síðar var látin niður falla.

Ólafur Ólafsson.Vísir/Vilhelm
„Við teljum það augljóslega skipta máli. Hann hefur beinan hag af því að losna undan saksókn í þeim málum,“ segir Þórólfur. Það hefði átt að taka fram við meðferð málsins.

Hörður Felix Harðarson, verjandi Heiðars Más, óskar eftir því annars vegar að sjö vitni gefi skýrslu. Þeirra á meðal eru Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi starfsmaður sérstaks saksóknara sem gagnrýndi embættið mjög fyrir störf sín í Fréttablaðinu á dögunum, og sömuleiðis Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. 

Hins vegar óskar Hreiðar Már eftir því að saksóknari leggi fram tölvupóstssamskipti sem hann hafi átt við Halldór Bjarkar Lúðvíksson, fyrrverandi starfsmanni fyrirtækjasviðs Kaupþings. Halldór Bjarkar var lykilvitni í Al-Thani málinu en hann var undirmaður Hreiðars Más hjá Kaupþingi og kom að láninu sem Kaupþing veitti Gerland, félagi Ólafs Ólafssonar.

Reiknað er með því að málið verði flutt í héraði á næstu dögum.


Tengdar fréttir

Allir sakborningar áfrýja niðurstöðu í Al-Thani máli

Allir sakborningar í Al-Thani málinu ætla að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Málsvarnarlaun sem Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings var dæmdur til að greiða verjanda sínum við í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Al-Thani málinu eru hæstu málsvarnarlaun sem dæmd hafa verið í sakamáli hér á landi.

Skýrslutökurnar varpi ljósi á ólögmætar símhleranir

Lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, lagði í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fram kröfu þess efnis að skýrslur verði teknar af sjö aðilum sem tengjast Al-Thani málinu svokallaða. Meðal þeirra eru rannsakendur sérstaks saksóknara.

Ragnar og Gestur misbuðu virðingu dómsins

Lögmennirnir Ragnar H. Hall og Gestur Jónsson fengu eina milljón króna í réttarfarsekt hvor fyrir að segja sig af tilnefnislausu frá Al-Thani málinu sem verjendur sakborninga við dómsuppkvaðningu í Héraðsdómi í dag.

Saksóknari vissi ekki af ættartengslum dómara í Aurum-máli

Sverrir Ólafsson, sem var sérfróður meðdómsmaður í Aurum-málinu, er bróðir Ólafs Ólafssonar kaupsýslumanns sem kenndur er við Samskip. Ólafur var ákærður af sérstökum saksóknara og síðar dæmdur í Al-Thani málinu. Sérstakur saksóknari hafði ekki upplýsingar um ætterni Sverris og segir að hann hefði hreyft mótmælum hefði það legið fyrir.

Dómur í Al-Thani máli í dag - allt sem þú þarft að vita

Dómur verður kveðinn upp í Al-Thani málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag kl. 15. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings og aðrir sakborningar í málinu gætu átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi.

Lítur málið alvarlegum augum

Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari segist líta það alvarlegum augum að mistök hafi verið gerð þegar upptökum af símtölum milli verjenda og sakborninga var ekki fargað í málum hjá embættinu.

Á að senda saksóknara „berhentan í hringinn“?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis- og dómsmálaráðherra segir að unnið sé að því að finna lausn fyrir framtíðarfyrirkomulag rannsókna á efnahagsbrotum með það fyrir augum að verkefni sem séu hjá sérstökum saksóknara spillist ekki, en framlög til embættisins hafa verið verulega skert.

Al-Thani málið: Þungir fangelsisdómar yfir Kaupþingsmönnum

Dómur var kveðinn upp í Al-Thani málinu nú rétt í þessu. Sakborningar fengu eftirtalda dóma: Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, fimm ár og hálft ár. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, fimm ár. Ólafur Ólafsson, fjárfestir, 3 og hálft ár. Magnús Guðmundsson, forstjóri Kaupþings í Lúxemborg 3 ár.

Al Thani dómarnir vekja víða athygli

Dómarnir yfir Kaupþingsmönnunum sem féllu í héraðsdómi í gær hafa vakið töluverða athygli út fyrir landsteinana. Margir af stærstu miðlum heims hafa fjallað um málið og má þar nefna BBC, Financial Times, Bloomberg og the Wall Street Journal.

Vill að sérstakur saksóknari beri vitni um hleranir

Lögmaður Hreiðars Más Sigurðssonar hefur farið fram á að sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, verði kallaður til sem vitni í frávísunarkröfu vegna þess sem lögmaður Hreiðars Más telur vera ólöglegar hleranir.

Ekki sætt í embætti ef lög voru brotin

Brynjar Níelsson þingmaður vill að lögum verði breytt svo mál gegn rannsóknaraðilum fyrnist ekki áður en upp um þau kemst. Hann segir sérstökum saksóknara ekki sætt í embætti hafi hann gerst sekur um lögbrot við rannsóknir mála.

Ólafur áfrýjar Al-Thani dómnum

ÓIafur Ólafsson, einn hinna ákærðu í Al-Thani málinu mun áfrýja dómi héraðsdóms Reykjavíkur til hæstaréttar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×