Innlent

Sakborningar í Papeyjar- og Pólstjörnumálunum ákærðir fyrir frelsissviptingu og líkamsárás

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sakborningar í Papeyjarmálinu þegar málið var til meðferðar í héraðsdómi.
Sakborningar í Papeyjarmálinu þegar málið var til meðferðar í héraðsdómi. vísir/gva

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þremur karlmönnum á fertugsaldri sem grunaðir eru um sérstaklega hættulega líkamsárás og frelssviptingu gegn pari við verslunarmiðstöðina Grímsbæ í Fossvogi í Reykjavík í júlí 2014 eða fyrir rúmlega tveimur árum.

Þremenningarnir eru sakaðir um að hafa veist að parinu, karlmanni og konu á fimmtugs- og sextugsaldri, með því að hafa slegið þau ítrekað í andlitið með krepptum hnefa. Þá eru þeir sagðir hafa tekið utan um háls konunnar og hert að.

Sjá einnig: Klukkustund í greipum handrukkara

Því næst eru mennirnir grunaðir um að hafa þvingað fólkið inn í bifreið, en konunni tókst að flýja út um glugga bifreiðarinnar. Þeir hafi ekið með karlmanninn í Garðabæ, haldið honum föngnum í allt að fjörutíu mínútur, og veist að honum.

Einn þremenninganna er sagður hafa slegið manninn með kúbeini í rist hægri fótar, höfuð og líkama, á meðan annar sló hann ítrekað með krepptum hnefa í líkama og höfuð. Að því loknu ekið með manninn í Hafnarfjörð.

Sakborningar í Pólstjörnusmyglinu svonefnda.vísir/eyþór

Tveir mannanna, Alvar Óskarsson, og Jónas Árni Lúðvíksson, hafa báðir hlotið þunga dóma. Þeir voru báðir dæmdir fyrir aðild að umfangsmestu fíkniefnamálum sem upp hafa komið hér á landi. Pólstjörnumálið í tilfelli Alvars og Papeyjar-málið í tilfelli Jónasar.

Alvar Óskarsson hlaut sjö ára fangelsisdóm árið 2008 í Pólstjörnumálinu en hann, ásamt fimm öðrum mönnum, var dæmdur fyrir að flytja um fjörutíu kíló af fíkniefnum til landsins með skútu til Fáskrúðsfjarðar.

Jónas Árni Lúðvíksson var dæmdur í fimm ára fangelsi vegna Papeyjarmálsins árið 2009. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt að smygla hingað til lands rúmlega hundrað kílóum af fíkniefnum.


Tengdar fréttir

Papeyjarsmyglarar aftur dæmdir til fangelsisvistar

Tveir menn, sem dæmdir voru fyrir fíkniefnasmygl í Papeyjarmálinu árið 2009, eiga yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi fyrir að hafa ráðist á karlmann í byrjun júlímánaðar síðastliðinn.

Vistun Papeyjarfanga gæti kostað samfélagið 350 milljónir

Það gæti kostað alls 352 milljónir að vista mennina sem voru dæmdir í Papeyjarmálinu í gær í fangelsi næstu árin. Samkvæmt upplýsingum frá Páli Winkel fangelsismálastjóra kostar vistun fanga 24 þúsund krónur á sólarhring.

Höfuðpaurinn í Pólstjörnumálinu tekinn með fíkniefni

Einar Jökull Einarsson sem fékk þyngsta dóminn í Pólstjörnumálinu svokallaða hefur verið ákærður fyrir vörslu fíkniefna. Einar Jökull afplánar nú níu og hálfs árs fangelsisdóm á Litla Hrauni fyrir að hafa skipulagt smygl á tæpum fjörutíu kílóum af fíkniefnum sem komu hingað til lands með skútu.

Telja pólstjörnumanninn á leiðinni til Spánar

Frjálslyndi flokkurinn telur að Guðbjarni Traustason, sem lögreglan hefur leitað síðan hann skilaði sér ekki aftur á Litla Hraun, þar sem hann afplánar dóm fyrir fíkniefnasmygl, sé á leiðinni til Alicante.

Ein stærsta lögregluaðgerð fyrr og síðar

Lögregla réðst inn á skipulagsfund Outlaws og á sex aðra staði vítt og breitt um suðvesturhorn landsins. Fann dóp, vopn, þýfi og bruggtæki. Sextán voru handteknir og fjórir færðir fyrir dómara í gærkvöldi, meðal annars leiðtogi klúbbsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×