Erlent

Sakar Stanford-háskóla um að hafa ítrekað hunsað kvartanir kvenna um kynferðisbrot

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Stanford-háskóli í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Stanford-háskóli í Kaliforníu í Bandaríkjunum. vísir/getty
Stanford-háskóli í Bandaríkjunum hunsaði kvartanir um kynferðisbrot, vísaði frá einstaklingum sem settu fram ásakanir um kynferðisbrot og refsaði ekki nemanda sem þekktur var fyrir að brjóta gegn konum.

Þetta er á meðal ásakana sem settar eru fram á hendur skólanum í dómsmáli sem aðgerðahópurinn Equality Rights Advocates hefur höfðað gegn háskólanum fyrir hönd konu sem hóf grunnnám við Stanford árið 2011 og er nú meistaranemi við skólann.

Ítarlega er fjallað um málið á vef Guardian. Þar kemur fram að samkvæmt málsgögnum á ónefndur maður, sem einnig var nemandi við Stanford, að hafa tekið eina konu hálstaki áður en hann nauðgaði henni. Þá áreitti hann einnig aðra konu kynferðislega og sagði henni ítrekað í kjölfarið að hún ætti að drepa sjálfa sig.

Skólinn telur að hann hafi staðið rétt að málum

Þrátt fyrir að háskólinn hafi vitað af árásum mannsins gegn nokkrum nemendum á árunum 2010 til 2014 þá gerðu skólayfirvöld í Stanford lítið sem ekkert til refsa manninum og vernda konur gegn honum, að því er fram kemur í málsgögnunum.

Þvert á móti eiga starfsmenn skólans að hafa latt konur til þess að tilkynna formlega um brotin en að minnsta kosti einu sinni var kona spurð hvort hún hefði ekki átt á hættu á því að verða fyrir árás með því hvernig hún klæddi sig.

Lisa Lepin, talskona Stanford-háskóla, vildi ekki tjá sig um einstök efnisatriði málsins þegar Guardian leitaði eftir því en sagði þó að skólinn myndi verjast málsókninni af krafti enda telja skólayfirvöld að þau hafi tekið rétt á málum.

Sex mánaða fangelsi fyrir að nauðga skólasystur sinni

Fyrr á árinu var mikið fjallað um nauðgun sem átti sér stað á skólalóð Stanford-háskóla í janúar 2015. Brock Turner, sem var þá nemandi við skólann, nauðgaði þá skólasystur á bak við ruslagáma á skólalóðinni og var hann sakfelldur fyrir glæpinn.

Dómurinn vakti þó mikla reiði í Bandaríkjunum þar sem mörgum fannst sex mánaða fangelsisrefsing léttvæg miðað við alvarleika glæpsins. Það vakti svo ekki minni reiði þegar að Turner losnaði úr fangelsi eftir að hafa afplánað þrjá mánuði.


Tengdar fréttir

Stanford-nauðgarinn losnar úr fangelsi á morgun

Brock Turner fyrrverandi nemandi Stanford-háskóla sem sakfelldur var fyrr á árinu fyrir að nauðga skólasystur sinni, losnar úr fangelsi á morgun eftir að hafa afplánað þrjá mánuði af sex mánaða dómi sem hann fékk þar sem hann hefur hagað sér vel innan veggja fangelsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×