Sautján ára gömul stúlka hefur kært Helge Solum Larsen, varaformann stjórnmálaflokksins Venstre og bæjarstjórnarmann í Stavangri, fyrir nauðgun. Brotið mun hafa átt sér stað á ársfundi Rogalands-deildar Venstre um síðustu helgi.
Solum Larsen, sem er 43ja ára, gengst við því að hafa haft samræði við stúlkuna en neitar ásökunum um nauðgun. Hann hefur sagt sig frá öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og dvelur nú, að sögn norskra miðla, á geðdeild.
Rannsókn er nýhafin, en allt að 10 ára fangelsi liggur við brotinu.- þj