Innlent

Sakaði þann sem er í haldi um nauðgun

Snærós Sindradóttir skrifar
Lögregla leiðir sakborninginn í málinu úr Héraðsdómi Reykjaness síðastliðinn fimmtudag.
Lögregla leiðir sakborninginn í málinu úr Héraðsdómi Reykjaness síðastliðinn fimmtudag. Vísir/Anton Brink
Grænlensk kona á þrítugsaldri segir Thomas Møller Olsen, sakborninginn sem grunaður er um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur, hafa nauðgað sér árið 2011. Thomas var sýknaður í málinu í héraðsdómi Ilulissat.

Aðspurður hvort lögregla hafi skoðað þetta grænlenska sakamál í rannsókn sinni á máli Birnu Brjánsdóttur segir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn að þeir hafi skoðað sakaferil mannanna en muni ekki tjá sig nánar um þau mál.

Dánarorsök Birnu, sem fannst látin nærri Selvogsvita 22. janúar, var drukknun að því er fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöld. Grímur segist ekki vilja tjá sig um þetta atriði.

Sofnaði í rúmi í samkvæmi

Fyrrnefnda konan á Grænlandi, sem vill ekki koma fram undir nafni, segir hvarf Birnu Brjánsdóttur hafa reynst sér afar erfitt. Málið hafi neytt hana til að endurupplifa verknaðinn og vakið upp sárar minningar.

Í samtali við Fréttablaðið rifjar konan upp að árið 2011 hafi hún verið gestur í samkvæmi en farið afsíðis til að ræða við þáverandi kærasta sinn í síma, en sá var ekki staddur í sama bæ og hún.

Á meðan símtalið átti sér stað lagðist konan í rúm í svefnherbergi íbúðarinnar og eftir að samtalinu lauk sofnaði hún.

Konan segist hafa vaknað við að Thomas var að nauðga henni. Hún hafi ekki getað spornað við verknaðinum, annaðhvort verið of svefndrukkin vegna ölvunar eða hreinlega frosið. Eftir atvikið segist konan hafa grátið sárt og kært málið til lögreglunnar daginn eftir.

Sæði í leggöngum nægði ekki til sakfellingar

Lögreglan fór með hana á sjúkrahús þar sem lífsýnum var safnað og henni veitt aðhlynning.

Konan segir að sæði Thomasar hafi fundist í leggöngum hennar en það hafi ekki nægt til sakfellingar þar sem ættingi hans, sem einnig var í samkvæminu, hafi borið fyrir dómstólnum að samfarirnar hafi verið með samþykki beggja.

Mál Birnu hefur að sögn konunnar tekið mikið á hana. Margir, sem þekki til tengsla hennar og Thom­asar, hafi haft samband vegna málsins og hún upplifi mikið áreiti.

Konan vill koma því á framfæri að með sögu sinni vilji hún hreinsa borðið en muni ekki tjá sig að neinu öðru leyti um málið eða gefa neinar frekari upplýsingar um þessa lífsreynslu sína. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Segir manninn hafa verið samstarfsfúsan frá upphafi

Verjandi mannsins, sem grunaður var um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana en er nú laus úr haldi, segir hann hafa verið samstarfsfúsan frá upphafi. Einangrunin og málið í heild hafi reynst honum afar erfitt. Hann sé að vinna úr sínum málum á Grænlandi með aðstoð fjölskyldu og fagaðila.

Telja dánarorsök Birnu vera drukknun

Lögreglan telur að dánarorsök Birnu Brjánsdóttur, sem fannst látin við Selvogsvita þann 22. janúar síðastliðinn, hafi verið drukknun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×