Viðskipti erlent

Saka rússneska hakkara um að nýta galla á Windows

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AFP
Tæknifyrirtækið Microsoft sagði í dag að rússneskir hakkarar, sem hafa verið tengdir yfirvöldum Rússlands, hafi nýtt sér öryggisgalla á Windows stýrikerfinu. Fyrirtækið heldur því fram að hópur hakkara, sem gengur undir nafninu Fancy Bear eða APT 28 hafi gert árásir með svokölluðum „spjótaveiðum“ í tölvupóstum.

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa sakað Fancy Bear um að vinna fyrir leyniþjónustu Rússlands og að hópurinn hafi ráðist á tölvukerfi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum.

Samkvæmt Reuters fréttaveitunni snýr gallinn að Flash-hugbúnaði í einni útgáfu Windows stýrikerfisins. Adobe, sem framleiðir Flash, hefur gefið út svokallaðan plástur fyrir gallann eftir Google opinberaði hann í dag.

Microsoft gagnrýndi Google fyrir yfirlýsinguna og sagði hana hafa sett öryggi tækja notenda sinna í hættu. Microsoft mun ekki geta lagað gallann fyrr en þann 8. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×