Innlent

Saka Reebok fitness um fitufordóma

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Margir hefja nýtt ár á líkamsræktarátaki.
Margir hefja nýtt ár á líkamsræktarátaki. vísir/ernir/reebokfitness
Samtök um líkamsvirðingu hafa gagnrýnt auglýsingu Reebok fitness, sem var meðal annars birt í Morgunblaðinu í dag. Nútíminn greindi fyrstur frá

Auglýsingin er mynd af hnellinni babúsku í íþróttafötum ofan við textann „losaðu þig við jólalögin“.

Samtökin birtu stöðuuppfærslu á Facebook í dag þar sem þau gagnrýna auglýsinguna.

„Jæja, þá er hin árlega líkamssmánun af hendi líkamsræktarstöðva byrjuð. Í staðinn fyrir að fara þá leið að hvetja og valdefla fólk af öllum stærðum og gerðum til að bæta heilsu sína á jákvæðum nótum er þessi leið farin. Skilaboð eru send um að feitir líkamar séu skammarlegir og að innra með hverjum og einum þeirra búi annar og grennri líkami,“ segir meðal annars í stöðuuppfærslunni.













„Fyrir utan að valda skömm og smánun með feitu fólki, eflir þetta fitufordóma innan samfélagsins.“ Skammist ykkar Reebok Fitness Ísland. Allir geta bætt heilsu sína óháð því hvort þyngdartap verði eða ekki og fitufordómar og smánun vegna holdafars er risastórt lýðheilsuvandamál. Enginn annar bransi græðir á smánun eins og megrunarbransinn, það er kominn tími til að vekja athygli á því og stoppa það!“

Reebok fitness birti auglýsingu sína einnig á Facebook en þónokkrir hafa lýst yfir gremju sinni í garð auglýsingarinnar í athugasemdum við hana. Öðrum sem skrifað hafa athugasemd á þráðinn finnst gagnrýnendurnir vera að gera stórmál úr auglýsingunni og sjá ekkert athugavert við hana.

Ekki náðist í framkvæmdastjóra Reebok fitness við vinnslu fréttarinnar. 

Hér að neðan má sjá auglýsingu Reebok fitness auk stöðuuppfærslu Samtaka um líkamsvirðingu:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×