Innlent

Saka meirihluta atvinnuveganefndar um lögbrot

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jón Gunnarsson er formaður atvinnuveganefndar.
Jón Gunnarsson er formaður atvinnuveganefndar. Vísir
Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru harðorðir í garð Jóns Gunnarssonar, formanns atvinnuveganefndar og meirihluta hennar, við upphaf þingfundar í morgun. Á fundi atvinnuveganefndar í morgun lagði Jón fram tillögu um að færa fjóra virkjunarkosti úr biðflokki í nýtingarflokk.

Í raun er um breytingartillögu að ræða við tillögu sem meirihluti nefndarinnar samþykkti í lok nóvember í fyrra um að færa 8 virkjunarkosti í nýtingarflokk, en skemmst er að minnast þess að þá sauð upp úr á þinginu.



Lilja Rafney MagnúsdóttirVísir/Vilhelm
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar í morgun og greindi frá því að Jón hefði borið tillöguna upp munnlega, en tillagan var ekki á dagskrá nefndarinnar.

Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru sammála um að verið væri að brjóta lög um rammaáætlun. Í þeim sé skýrt kveðið á um að ráðherra geri tillögur um virkjunarkosti en ekki formaður atvinnuveganefndar.

Helgi Hjörvar.Vísir/Vilhelm
„Með lögum skal land byggja,“ sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, á þinginu í dag. Hann krafðist þess að forsætisnefnd kæmi saman til að ræða það hvernig staðið væri að umræddri tillögu þar sem hann sagði það klárlega gegn ákvæðum laganna að standa að henni með slíkum hætti.

Jón Gunnarsson hafnaði því að meirihluti atvinnuveganefndar væri að brjóta lög um rammaáætlun; þingið hefði heimild til þess að taka til skoðunar hvernig flokka ætti virkjunarkosti þar sem ekkert stæði í lögunum um það að þingið ætti að stimpla óbreytt það sem kæmi frá ráðherra í þessum efnum.

Þessu voru þingmenn stjórnarandstöðunnar ósammála og sögðu klárt að verið væri að brjóta lög um rammaáætlun. Kröfðust þeir þess að þingforseti gerði hlé á þingfundi og boða til fundar með þingflokksformönnum svo taka mætti málið á dagskrá. Þingforseti hafnaði því að gera hlé á fundi en kvaðst boða til fundar með þingflokksformönnum í hádeginu.

Kristján L. Möller.Vísir/GVA
Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi flokksins í atvinnuveganefnd, lagði fram eftirfarandi bókun í nefndinni í morgun:

Undirritaður mótmælir vinnubrögðum meirihluta nefndarinnar við málsmeðferð á þingmáli nr. 244 Áætlun um vernd og nýtingu landssvæða (Hvammsvirkjun). Þ.e. að bæta við fjórum nýjum virkjunarkostum í og við vinnu nefndarinnar og á milli umræðna á Alþingi.


 

Ég tel að þessi málsmeðferð sé ekki í samræmi við lög um vernd og nýtingu landssvæða og harma það að ekki sé farið að þeim lögum. Þessi málsmeðferð meirihluta nefndarinnar mun skapa harðar deilur og úlfúð um þetta mikilvæga mál og viðkvæma málaflokk, þar sem nauðsynlegt er að skapa sem mesta sátt og eyða deilumálum.

 

Auk þess vil ég vekja athygli á því að umrætt mál var ekki á dagskrá fundarins og er tekið upp í lokin undir önnur mál þar sem m.a. þurfti að kalla inn nýja þingmenn svo meirihlutinn næði sínu fram.

 

Kristján L. Möller



Tengdar fréttir

Átta virkjanakostir í nýtingarflokk

Formaður atvinnuveganefndar tilkynnti á fundi nefndarinnar gær að auk Hvammsvirkjunar yrðu sjö nýir virkjanakostir færðir úr biðflokki í nýtingarflokk. Stjórnarandstaðan segir komið aftan að sér og farið á svig við lög um rammaáætlun og vinnu verkefnastjórnar.

Segja sátt rofna og málsmeðferðarreglur brotnar

Stjórn Landverndar mótmælir harðlega framkominni tillögu meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis um að færa átta virkjanahugmyndir úr biðflokki í nýtingarflokk rammaáætlunar.

Efast um lögmæti tillögu um virkjanakosti

Ekki var hægt að skipa faghópa í haust til að hefja matsvinnu á fimm virkjunarkostum í biðflokki rammaáætlunar. Atvinnuveganefnd vill færa þessa sömu kosti úr bið- í nýtingarflokk án aðkomu verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Formaður efast um lögmæti þeirrar aðgerðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×