Formúla 1

Sainz: Ég lokaði augunum og lét vaða

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Þrír hröðustu ökumenn dagsins.
Þrír hröðustu ökumenn dagsins. Vísir/Getty
Lewis Hamilton var fljótastur í tímatökunni í Kanada í gær. Hann verður því á ráspól í dag. Ráspóll Hamilton verður 51. ráspóll Mercedes liðsins.

„Í dag var bilið minna en í gær á æfingu. Ég hefði getað náð meira bili í Nico [Rosberg]. Það skiptir ekki máli hvort bilið er stórt, svo lengi sem ég er á undan,“ sagði Hamilton eftir tíamtökuna.

„Ég gerði smá mistök. Þetta eru góð úrslit fyrir liðið. Veðrið gæti spilað stóran þátt í keppninni á morgun. Það er aldrei að vita hvað gerist,“ sagði Nico Rosberg eftir tímatökuna.

„Bíllinn var góður í dag,“ sagði Sebastian Vettel eftir tímatökuna og Vettel má vera bjartsýnn.

Hann var innan við tveimur tíundu úr sekúndu á eftir Mercedes. Túrbó uppfærslurnar virðast virka vel fyrir Ferrari.

„Auðvitað er þetta gott við erum með tvo fremstu bílana. Miðað við gengi Lewis hérna undanfarin ár þá er Nico raunar ótrúlega nálægt honum. Nico virðist hafa bætt tímatökurnar sínar. Veðrið gæti skipt sköpum á morgun,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

„Ég lokaði augunum og lét vaða,“ sagði Carlos Sainz sem klessti Toro Rosso bíl sinn í annarri lotu tímatökunnar. „Ég færði Fernando [Alonso] sætið í þriðju lotu með þessum mistökum. Það hefði mátt koma í veg fyrir áreksturinn við vegginn.

„Ég sat ekki í kjölsoginu á neinum á beina kaflanum eins og Fernando. Hann fékk aðstoð frá mér. Ég var í góðum málum þangað til undir lok hringsins vegna þess að mig vantaði kjölsog til að sitja í,“ sagði Jenson Button sem endaði 12. í tímatökunni og var svekktur með að komast ekki í þriðju lotuna.

„Kjölsogið munar einum til tveimur tíundu, og við sáum það á æfingum og í tímatökunni að tveir tíundu úr sekúndu eru kannski fimm sæti hér. Ég fékk gott kjölsog og komst í þriðju lotuna, þökk sé Jenson,“ sagði Alonso.

Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 17:30 á Stöð 2 Sport í dag.


Tengdar fréttir

Hamilton fljótastur á báðum æfingum

Lewis Hamilton, á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir kanadíska kappaksturinn. Felipe Massa lenti harkalega á varnarvegg í fyrstu beygju á fyrri æfingunni.

Lewis Hamilton á ráspól í Kanada

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatökunni í dag. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×