Körfubolti

Sager á leið í annan slag við hvítblæði

Craig Sager.
Craig Sager. vísir/getty
Íþróttafréttamaðurinn vinsæli, Craig Sager, er á leið í annan slag fyrir lífi sínu eftir að hafa verið aftur greindur með hvítblæði.

Hann var líka greindur í apríl á síðast ári og missti þá af tæpu ári í vinnu á meðan hann barðist við sjúkdóminn. Hann snéri aftur á hliðarlínuna í NBA-deildinni þann 5. mars.

Sonur hans tilkynnti á Twitter í gær að hvítblæðið hefði tekið sig upp á nýjan leik.

Hinn skrautlegi og skemmtilegi Sager mun því hverfa aftur af hliðarlínunni en stefnir sem fyrr á að koma sterkur til baka.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×