Erlent

Sagður hafa fengið 12 ára dóm í hefndarskyni

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Kínverski listamaðurinn Ai Weiwei, sem hefur verið í sjálfskipaðri útlegð í rúmt ár, er einn þeirra sem notið hafa aðstoðar lögmannsins Xia Lin.
Kínverski listamaðurinn Ai Weiwei, sem hefur verið í sjálfskipaðri útlegð í rúmt ár, er einn þeirra sem notið hafa aðstoðar lögmannsins Xia Lin. Nordicphotos/AFP
Lögmaður kínverska listamannsins Ai Weiwei hefur verið dæmdur í tólf ára fangelsi í Kína. Kínversk mannréttindasamtök segja dóminn hefndaraðgerð, ætlaða til þess að þagga niður í mannréttindalögfræðingum.

Lögmaðurinn Xia Lin, sem er 46 ára, hefur tekið að sér ýmis mannréttindamál fyrir kínverskum dómstólum. Meðal annars hefur hann verið verjandi hagfræðingsins Guo Yushan, sem hafði lýst yfir stuðningi við mótmælin í Hong Kong árið 2014.

Xia var einmitt handtekinn í nóvember það ár, þegar hann var að búa sig undir að verja Guo. Sjálf réttarhöldin hófust þó ekki fyrr en í júní síðastliðnum, hálfu öðru ári eftir handtökuna.

„Hann telur að þeir séu að hefna sín á sér fyrir að hafa blandað sér í Hong Kong-málið og fleiri mannréttindamál,“ er haft eftir Ding Xikui, lögmanni Xias, á fréttavef breska dagblaðsins The Guardian.

Xia var sakfelldur fyrir að hafa með svikum útvegað sér jafnvirði 80 milljóna króna til að greiða upp spilaskuld.

Stuðningsmenn hans segja ekkert hæft í þessu. Dómurinn hafi þann eina tilgang að fæla lögmenn frá því að taka að sér mannréttindamál.

„Þessi dómur er yfirgengilegur,” segir Maya Wang hjá mannréttindasamtökunum Human Rights Watch í viðtali við frönsku fréttastofuna AFP, „ekki bara vegna þess hve þungur hann er heldur einnig vegna þess að hann var felldur yfir mannréttindalögmanni sem hefur reynt að vernda sjálfan sig með því að vinna vinnu sína með faglegum hætti án þess að láta mikið á sér bera.”

Lítið sem ekkert hefur verið fjallað um dóminn í kínverskum fjölmiðlum. Hins vegar hafa samfélagsmiðlar verið óspart notaðir til að vekja athygli á málinu.

Xia er þekktastur fyrir að hafa tekið að sér mál kínverska listamannsins Ai Weiwei, eins helsta listamanns Kína, sem hafði verið óhræddur við að vekja athygli á mannréttindabrestum. Weiwei var handtekinn árið 2011, sakaður um skattsvik, en látinn laus nokkrum mánuðum síðar. Hann hélt til Evrópu árið 2015 og hefur verið í sjálfskipaðri útlegð frá Kína síðan.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×