Lífið

Sagði upp vinnunni og kærastanum

Ellý Ármanns skrifar
Kristín Ruth, Svali, Gassi og Sigga stjórnuðu þættinum Zuuber hérna í denn. Nú er Kristín laus og liðug og hætt í útvarpinu.
Kristín Ruth, Svali, Gassi og Sigga stjórnuðu þættinum Zuuber hérna í denn. Nú er Kristín laus og liðug og hætt í útvarpinu.
Útvarpskonan Kristín Ruth Jónsdóttir sagði nýverið starfi sínu lausu á útvarpsstöðinni Kiss Fm eftir þriggja ára starf. 

Útvarpshlustendur þekkja mæta vel rödd Kristínar af öldum ljósvakans en hún starfaði á útvarpsstöðinni Fm957 lengi vel í þættinum Zuuber sem var gríðarlega vinsæll á sínum tíma.

Í dag starfar Kristín hjá Eddu útgáfu þar sem hún hefur í nægu að snúast vegna Disney útgáfu forlagsins í Bandaríkjunum. Ekki nóg með það heldur er Kristín einnig laus og liðug en hún er nýhætt með kærastanum eftir sex ára samband.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×