Viðskipti erlent

Sagði „mögulega best“ fyrir Grikki að yfirgefa evrusamstarfið

Samúel Karl Ólason skrifar
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Vísir/EPA
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði öðrum leiðtogum Evrópusambandsins að mögulega væri betra fyrir Grikki að yfirgefa evrusamstarfið. Þannig gætu þeir fært efnahag sinn í lag. Cameron sagði þó að í því fælist mikil áhætta.

Samkvæmt skjölum sem Guardian hefur undir höndum sagði Cameron þetta við leiðtoga annarrar ESB þjóðar á nýliðnum fundi. Á morgun munu fjármálaráðherrar evruríkjanna halda neyðarfund til að reyna að koma í veg fyrir gjaldþrot gríska ríkisins.

Grikkir þurfa að greiða einn og hálfan milljarð evra til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á þriðjudaginn. Til þess þurfa þeir aðgang að neyðarfé, en kröfuhafar Grikkja vilja ekki veit þann aðgang án aðhaldsaðgerða í rekstri ríkisins í Grikklandi.

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, sakaði lánadrottna Grikkja um að kúga grísk stjórnvöld þegar hann yfirgaf leiðtogafund ESB nú síðdegis.

Sjá einnig: Tsipras sakar lánadrottna um að kúga Grikki

Tsipras sagði Grikki áfram munu berjast fyrir evrópskum gildum – gildum á borð við lýðræði, samstöðu, jafnræði og gagnkvæma virðingu. „Þessi gildi byggja ekki á kúgunum og úrslitakostum,“ sagði Tsipras þegar hann yfirgaf fundinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×