Sagan af Jóni og Ingjaldi

Vísir Aðsendar greinar 22. febrúar 2012 13:48
Halldór Gunnar Halldórsson.
Halldór Gunnar Halldórsson.
Halldór Gunnar Halldórsson skrifar:
Ötull maður sem hét Jón bjó á ónefndum stað á landinu. Hann var iðinn og duglegur á allan hátt. Líkt og gengur hófst lífsbaráttan snemma. Vegna aðstöðu sinnar sá hann sér hag í því að eignast hest ungur að árum.

Hann sá fram á að það myndi taka hann æði mörg ár að safna fyrir slíkri skeppnu. Það var þess vegna sem hann ákvað að leita til Ingjalds um lán.
Ingjaldur var auðugur mjög. Mörgum líkaði hins vegar ekki vel við Ingjald og til voru margar ófagrar sögur um viðskipti hans við aðra sveitunga.
En Jón dæmdi ekki fólk af sögu sögnum einum saman. Hann gat ekki séð hvernig einföld viðskipti við Ingjald gætu farið illa.

Þannig fór að Jón hitti Ingjald og lagði tilboð á borðið. Jón fengi lánaða tvo hesta af Ingjaldi. Hann myndi greiða þrjá hesta til baka, einn hest á ári næstu þrjú árin.

Jón sá fyrir sér að eftir þrjú ár og þrjú folöld myndi hann eiga hestana og njóta góðs af þeirri eign sinni og ávöxtum hennar þar eftir.

Svo gerðist nokkuð óvænt. Það gekk yfir landið heilmikil hestapest.

Helmingur allra hesta á landinu drapst, og þar á meðal annar hestanna hans Jóns.

Með einn hest eftir hafði Jón ekki nokkur tök á því að „framleiða" folöld og gekk á fund Ingjalds.

Jón sagði Ingjaldi hver staðan væri og vildi leyta lausna með lánadrottni sínum. Hann gæti hugsanlega fengið einn hest til lánaðan eða skilað þeim sem eftir var og greitt jafnvirði eins hests og hálfs til í vexti næstu árin.

Ingjaldur setti upp samúðarsvip samtímis sem hann nuddaði hnúfa hægri handar með þeirri vinstri.

„Jón minn, þú skuldar mér ekki lengur 2 hesta og einn í vexti. Nú skuldar þú mér 4 hesta og 2 í vexti. Veistu ekki að í dag eru til helmingi færri hestar á landinu og þar með er hver hestur 100% verðmætari. Svo ef þú vilt skila einum þá þarftu að greiða mér 3 hesta og 1,5 til í vexti."

Jón bar þá við hvort að hesturinn sem hann vildi skila myndi ekki gilda sem 2 hestar. En Ingjaldur samþykkti það ekki þar sem Jón væri ekki enn búinn að greiða fyrir þann hest. Hann benti honum hins vegar á að hann gæti selt hestinn og komið með andvirði tveggja hesta í peningum.

En báðir vissu þeir að það myndi aldrei ganga. Enginn var tilbúinn eða hafði ráð á að kaupa hest á tvöföldu verði.

Jón skyldi nú þau varnaðar orð sem hann hafði heirt fleygt hér og þar fyrir þann dómsdag sem hann ákvað að eiga viðskipti við Ingjald.

Eftir miklar tilraunir til samninga við Ingjald hélt Jón heim enn skuldugri með þriðja hestinn og kvíðahnút í maganum. Hvað gat hann gert annað en að reyna að bjarga sér úr þessari flækju?

Nú skuldaði Jón 6 hesta og 3 í vexti. En hann fékk bara 3 og einn þeirra drapst. Hvernig í ósköpunum gat hann verið kominn í þessa stöðu? Skulda 9 hesta en eiga eingöngu 2.

Árin liðu og Jón greiddi Ingjaldi eitt folald á ári. Enda þorði hann ekki öðru. Hann vissi að það væru til ömmur sem myndu líta á hann sem óreiðumann ef hann greiddi ekki af skuld sinni.

Ýmislegt miður gott gerðist í gegnum árin. Það riðu yfir allslags hestapestir með reglulegu millibili. Skuld Jóns við Ingjald óx jafnt og þétt samhliða þessum áföllum svo ekkert var við ráðið. Til voru þeir sem grunuðu Ingjald um að standa á einn eða annan hátt að baki öllum þessum ófögnuði sem pestirnar voru. En því trúði Jón tæplega. Hann trúði ekki að þvílíkt samviskuleysi væri til.

Þegar Jón afhenti síðasta folaldið var hann búinn að greiða Ingjaldi 47 hesta, en skuldaði honum þrátt fyrir það 83 til.

Undir lok starfs æfinnar þegar Jón átti samkvæmt öllum eðlilegum kringumstæðum að vera búinn að ná smávægilegri eignamyndun með öllum sýnum dugnaði og ósérhlífni átti hann ekkert. Ekki baun í bala. Og hestarnir tveir voru til alls ónothæfir og með öllu verðlausir eftir þær raunir sem þeir máttu þola.

Það var búið að hugsa fyrir því að Jón gæti séð um sig sjálfur á efri árum. Hluti tekna hans runnu í sjóð. Í sjóðnum réði Ingjaldur lögum og lofum.

Sjóðurinn hafði lánað Ingjaldi fyrir hestakaupum í gegnum árin. En sá munur var á að Ingjaldur greiddi hest fyrir hest en ekki hesta fyrir hest eins og Jón. Þetta var réttur þeirra réttmeiri. Á endanum hafði sjóðurinn rýrnað svo mjög að ekkert var eftir fyrir Jón að sækja þegar líða tók á seinni hlutann.

Jón endaði æfina stór skuldugur í herbergi með 50 öðrum á ónefndu elliheimili. Þetta var herbergi fyrir óreiðufólk. Eins og Jóni, hafði þessu fólki látið sér detta það í hug einu sinni á lífsleiðinni að fá lánaðan hest eða tvo. Allt þetta fólk hefði betur átt að einbeita sér að því að kaupa sér heimili. Griðastað fyrir sig og sína sem gæti svo nýst til ánægjulegs og tiltölulega áhyggjulauss æfikvelds.

Ingjald skorti hins vegar ekkert þrátt fyrir að hann hafi lítið sem ekkert unnið alla sína æfi. Hann var umkringdur djásnum og orðum á sínu ævikveldi.

Hesta Ingjalds erfðu börnin hans, ásamt uppáhalds húfunni og hestalána apparatinu.

Hvað varð þá um skuld Jóns við Ingjald þegar þeir kvöddu okkur báðir? Jú, erfingjar Ingjalds afskrifuðu hátt í 100 hesta og fengu skatta afslátt í staðinn.

Hver segir að ríkið sé ekki tilbúið að leggja sitt af mörkum umfram það að setja leikreglurnar?

Halldór Gunnar Halldórsson

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Sagan af Jóni og Ingjaldi