Innlent

Saga Ara Matt með ríkustu mönnum á Íslandi á Holtinu rifjuð upp

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ari segir fundinn hafa verið á Hótel Holti í kringum árið 2000.
Ari segir fundinn hafa verið á Hótel Holti í kringum árið 2000. Vísir/GVA
Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri sat fyrir nokkra tilviljun fjárfestingafund með mörgum af ríkustu mönnum landsins í kringum aldamótin. Þar kynnti Hreiðar Már Sigurðsson vogunarsjóð fyrir fundargestum sem átti að margborga sig fyrir fjárfesta. Arðgreiðslur áttu að vera tvisvar á ári og greiðast inn á bankareikning í útlöndum að eigin vali að því er Ari heldur fram.

Ari sagði söguna í Silfri Egils í janúar 2009, nokkrum mánuðum eftir fall bankanna haustið 2008. Lára Hanna Einarsdóttir rifjar upp sögu Ara í klippu sem Facebook-notendur keppast við að deila. Ljóst er að Lára Hanna kastar klippunni fram á ný í tengslum við mál Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og eignir í skattaskjólum.

Sjá einnig:Saga skattaskjóla jafngömul og skatta

Ari, sem sat fundinn í fjarveru fjársterks vinar síns, sá fundinn fyrst og fremst sem möguleika til að gera sér glaðan dag og borða á Holtinu. Hann áttaði sig svo á því að þarna var verið að hvetja auðmenn til fjárfestingaleiða og hagræðingar með því að geyma auð sinn annars staðar.

„Þetta segir manni að þessir peningar sem hafa verið reittir út úr sjávarútvegnum og almennilegum íslenskum fyrirtækjum hafa systematískt farið í skjól í Lúxemborg.“

Innslagið má sjá hér að neðan.

Fleiri tugir fjölmiðla um allan heim hafa komist yfir nafnalista fólks sem kýs að geyma auð sinn í skattaskjólum erlendis en ekki í bönkum eigin landa. Fleiri íslenskir ráðamenn hafa stigið fram í aðdraganda umfjöllunar sem vænta má í íslenskum sem erlendum fjölmiðlum í kvöld. Þeirra á meðal eru Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Ólöf Nordal innanríkisráðherra.

Þá sagði Vilhjálmur Þorsteinsson, gjaldkeri Samfylkingarinnar, sig frá störfum fyrir flokkinn vegna hlutafélags sem hann átti í Lúxemborg og hafði ekki greint frá.

„En þrátt fyrir allt sem að ofan er sagt, má augljóst vera að svona flókið eignarhalds- og fjárfestingadæmi hjá gjaldkera Samfylkingarinnar – jafnaðarmannaflokks Íslands er lítt til þess fallið að fókusera umræðuna sem nú stendur yfir um aflandsfélög og skattaskjól á það sem máli skiptir: ríkisstjórnina og stjórnarmeirihlutann í landinu.“

Sjá einnig:Skattaskjól, lögleg en siðlaus?

Fjallað verður um málið í Kastljósi í kvöld og hið sama gera fjölmiðlar víða um heim, á sama tíma eða klukkan 18 að íslenskum tíma. Má þar nefna danska og sænska ríkisútvarpið og Aftenposten í Noregi.

Stiklu fyrir þáttinn sem sýndur verður á DR1 í kvöld má sjá að neðan.

Erhvervsfolk, politikere og sportsstjerner gemmer penge i skattely - flere hundrede af dem er danskere.DR Dokumentar...

Posted by DR1 on Wednesday, March 30, 2016

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×