Jól

Safnar kærleikskúlum

Elín Albertsdóttir skrifar
Arnar Gauti með kærleikskúlurnar sínar sem hann raðar á grein. Þess má geta að í dag er síðasti söludagur kærleikskúlanna fyrir þessi jól.
Arnar Gauti með kærleikskúlurnar sínar sem hann raðar á grein. Þess má geta að í dag er síðasti söludagur kærleikskúlanna fyrir þessi jól. MYND/GVA
Fagurkerinn Arnar Gauti Sverrisson er mikið jólabarn og finnst gaman að skreyta fyrir jólin. Hann hefur safnað öllum kærleiks­kúlum sem gerðar hafa verið og þær fá veglegan sess á heimilinu.

Kærleikskúlan varð fyrst til árið 2003 en það var listamaðurinn Erró sem skreytti hana. „Það hefur verið hefð hjá mér að safna kærleikskúlum auk þess sem ég hef gefið foreldrum mínum hana í jólagjöf. Mér finnst kærleikskúlan vera fallegt form af íslenskri list, enda engir smá listamenn sem skreyta hana. Mér finnst frábært að listamenn skuli gefa sér tíma til að styrkja fatlaða með þessum hætti. Það er flott hugsun á bak við kúluna í heild sinni,“ segir Arnar Gauti.

„Ég raða kúlunum á stóra grein sem ég er með í vasa. Ég set þær ekki á jólatréð heldur nota þær sem glæsilega skreytingu. Það er bæði fallegt og svo er gaman að horfa á þær svona saman,“ segir hann. „Kúlurnar draga að sér gesti sem hafa gaman af að skoða þær. Ég fór einu sinni á sumarhátíð í Reykjadal og það var ótrúlega gefandi að sjá starfið á bak við kúlurnar. Auk þess varð mér ljóst hversu mikilvægt þetta styrktarstarf er. Það er gaman að geta styrkt starf Styrktarfélags lamaðra og fatlaða og fá í staðinn fallegan og eigulegan grip,“ segir Arnar. Kærleiks­kúlan í ár er eftir listakonuna Rögnu Róbertsdóttur.



TÍMI TIL AÐ NJÓTA

Arnar sem er þekktur fagurkeri og stílisti viðurkennir að hann sé mikið jólabarn. „Ætli glitrið í augum barna minna gleðji ekki mest auk þess sem mér finnst aðventan yndislegur tími. Ég vil vera búinn að öllu snemma og njóta þessa tíma með börnunum mínum, gera eitthvað skemmtilegt saman. Það er ekkert stress á mínu heimili. Ég er meira að segja búinn að kaupa jólamatinn,“ segir hann. „Við fórum á skauta á Ingólfstorgi um daginn sem var einstaklega ánægjulegt. Umhverfið er svo fallegt og þetta er vel gert,“ bætir hann við.

Arnar er fráskilinn og á tvö börn, Kiljan Gauta, 8 ára, og Natalíu París, 11 ára. „Börnin eru aðra hverja viku hjá mér og verða með mér á aðfangadag. Það verður möndlugrautur og hamborgarhryggur. Ég hef mjög gaman af því að elda mat og það verður mjög notalegt hjá okkur. Uppáhaldsmaturinn minn er hangikjöt og mamma eldar það fyrir okkur á jóladag,“ segir Arnar Gauti sem viðurkennir að hann sakni þess að eiga ekki stóra fjölskyldu. „Fjölskyldan mín er lítil. Ég er einkabarn og mamma var einkabarn. Það er því engin stórfjölskylda í kringum mig en við erum samheldin og kunnum að njóta. Ég held fast í hefðir á jólum. Við veljum jólatré saman og skreytum síðan. Krakkarnir eiga mikið af fallegu jólaskrauti. Ég hef gefið þeim jólaskraut frá því þau fæddust, hún fær alltaf jólakúlu sem er spiladós en hann fær hnotubrjót. Ég tek alltaf jólarölt um miðbæinn og kíki í Jólahúsið.“

Arnar Gauti er mikið jólabarn.MYND/ANTON BRINK
GAMALDAGS JÓL

Arnar Gauti starfar hjá Húsgagnahöllinni og er jafnframt með eigið blogg, sirarnargauti.is, þar sem hann gefur góð hönnunarráð. Þegar hann er beðinn að gefa konum góð ráð síðustu dagana fyrir jólin er hann fljótur að svara. „Setjast niður, fá sér púrtvín og slaka á. Besta ráðið er að njóta augnabliksins og þakka fyrir allt það góða sem við eigum.“

Arnar segir að dökk-búrgundí sé jólaliturinn í ár. „Litur eins og á góðu rauðvíni,“ segir hann. „Jólin núna eru svolítið gamaldags og sá litur hentar þess vegna mjög vel. Fatatískan er hins vegar margbreytileg en mér finnst alltaf að hinn eini sanni jólakjóll sé litli, svarti kjóllinn.“






×