Innlent

Safnaði 400 þúsund krónum og náði markmiði sínu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Brandur hefur stundað listsköpun sína í rúm þrjú ár.
Brandur hefur stundað listsköpun sína í rúm þrjú ár. MYND/BRANDUR
Brand­ur Bjarna­son Karls­son málari hefur nú náð markmiði sínu en hann hóf fjársöfnun fyrr í sumar til að standa straum af verkefninu Fairwell ret­urn to the high­lands.

Brandur hyggst ferðast um hálendi Íslands, með pensilinn að vopni, og mála mynd­ir af fjöll­um og firn­ind­um víðsvegar um land. Hann mun beita heldur nýstárlegri aðferð við listsköpun sína. „Listverkefnið gengur út á að nota flygildi (e. Drone) til að aðstoða mig við að taka myndir sem ég svo mála eftir. Þar sem ég er í hjólastóli gefur það mér tækifæri á að sjá viðfangsefni mín frá öðrum sjónarhornum en ella,“ segir Brandur í samtali við Vísi.

Fyrir tíu árum fór hann að missa mátt í útlimum og tæpum fjórum árum síðar var hann nánast alveg lamaður fyrir neðan háls. Hann lét það þó ekki stöðva sig og hefur Brandur nú í liðlega þrjú ár málað myndir með munninum – en tæknina lærði hann hjá Eddu Heiðrúnu Bachman.

Brandur hóf söfnunina á vefsíðunni Karolina fund í ágúst og stefndi hann að því að safna 2500 evrum, tæplega 400 þúsund krónum, til að standa straum af ferðakostnaði og uppihaldi meðan á ferðlagi hans stæði. Markmiðið náðist svo í síðustu viku og stefnir Brandur nú ótrauður að því að setja upp sýningu með verkum sínum í Ráðhúsi Reykjavíkur í upphafi næsta árs. Stærsta einstaka framlagið sem hann hlaut voru 500 evrur, um 75 þúsund krónur, og mun sá gjafmildi fá málverk frá Brandi að eigin vali. Brand­ur hef­ur nú þegar ferðast um Mý­vatns­sveit og upp á Öskju þar sem hann sendi flygildið um allt. Þá hefur hann einnig flogið flygildi sínu yfir gosstöðvarnar í Holuhrauni. Brandur segist þó ekki hafa getað ferðast jafn mikið í sumar og hann hefði viljað. „Ég svindlaði því aðeins og málaði eftir nokkrum ljósmyndunum sem vinir mínur tóku,“ segir hann kíminn og bætir við að það hafi þó ekki komið niður á gæðum verkanna. Upphæðin sem honum hefur nú tekist að safna gerir honum kleift að fjár­magna tækja­búnað, ferðakostnað og aðstoðarfólk sem get­ur farið með hon­um. Brandur vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg við að gera draum hans að veruleika. Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á söfnunarsíðu átaksins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×