ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ NÝJAST 08:10

Hátekjuskattur skekur Frakkland

FRÉTTIR

Sænskur blaðamaður njósnaði um liðsuppstillingu Englands

Vísir Fótbolti 17. júní 2012 16:00
Svíar og Englendingar áttust við í frábærum leik á EM sem endaði 3-2 fyrir England.
Svíar og Englendingar áttust við í frábærum leik á EM sem endaði 3-2 fyrir England. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Leikur Englendinga og Svía á EM s.l. föstudag var stórkostleg skemmtun þar sem að Englendingar fóru með sigur af hólmi 3-2. Það dugði ekki fyrir Svía að þeir fengu nánast allar upplýsingar um liðsval og leikaðferð Roy Hodgson þjálfara enska landsliðsins löngu áður en leikurinn hófst. Sænskur blaðamaður Ola Billger náði að horfa á „töflufund" enska landsliðsins í gegnum hótelglugga í Kænugarði og sendi hann allar upplýsingarnar á forráðamenn sænska landsliðsins – sem voru afar þakklátir fyrir.

Billger, sem starfar sem blaðamaður á Svenska-Dagbladet, sá fyrir tilviljun að enska landsliðið var að funda þar sem hann leit út um gluggann á hótelherbergi sínu. Hann tók fram sjónauka og sá hvernig Englendingar ætluðu að stilla upp liði sínu – og einnig hvaða áherslur þeir ætluðu að leggja upp með í sókn – sem vörn.

„Ég var með frábært útsýni í 40 mínútur, við heyrðum að sjálfsögðu ekki neitt, en við sáum ýmislegt sem voru góðar upplýsingar fyrir Svía. Við sáum að Andy Carroll yrði í byrjunarliðinu og Alex Oxlade-Chamberlain yrði á bekknum," sagði Billger. Hann kom upplýsingunum á framfæri til Reine Almquist sem starfar fyrir sænska knattspyrnusambandið. Þessar upplýsingar komu hinsvegar ekki í veg fyrir að Svíar töpuðu leiknum 3-2 og eru þeir úr leik í keppninni um tvö efstu sætin í D-riðlinum.

Lokaumferðin í D-riðli fer fram á þriðjudaginn þar sem að Englendingar leika gegn Úkraínu, og Svíar gegn Frökkum. England og Frakkland eru með 4 stig, Úkraína 3 og Svíar eru án stiga.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fótbolti 20. maí 2013 23:45

Eboue sneri sjónvarpsmann í jörðina

Emmanuel Eboue er afar sérstakur knattspyrnumaður. Hann lék lengi með Arsenal en er nú á mála hjá Galatasarey í Tryklandi. Liðið var Tyrkneskur meistari um helgina og fagnaði Eboue mjög vel. Meira
Fótbolti 20. maí 2013 22:45

Zlatan valinn sá besti í Frakklandi

Svíinn Zlatan Ibrahimovic hefur verið valinn leikmaður ársins í frönsku Ligue 1 deildinni. Þessi 31 árs leikmaður skoraði 29 mörk í deildinni í vetur og leiddi liðið til síns fyrsta sigur í deildinni ... Meira
Fótbolti 20. maí 2013 14:07

Tap hjá Íslendingaliðinu Avaldsnes

Íslendingaliðið Avaldsnes tapaði í dag 1-2 gegn Røa í norsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Fjórir Íslendingar leika með Avaldsnes en það eru þær. Guðbjörg Gunnarsdóttir, Þórunn Helga Jónsdóttir, M... Meira
Fótbolti 19. maí 2013 21:15

Ancelotti vill fara til Real Madrid

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Ítalinn Carlo Ancelotti verði næsti þjálfari Real Madrid. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 13:55

Alfreð og félagar úr leik

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Heerenveen þegar liðið tapaði 2-1 gegn Utrecht í síðari leik liðanna í umspili um sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 13:23

Silfur til Ólafs Inga og brons til Eiðs Smára

Anderlecht varð í dag belgískur meistari í knattspyrnu eftir 1-1 jafntefli gegn Ólafi Inga Skúlasyni og félögum í Zulte Varegem í lokaleik úrslitakeppni efstu liða deildarinnar. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 13:12

Þrjú stig í hús hjá Helga Val

Helgi Valur Daníelsson spilaði allan leikinn með AIK sem lagði Öster 3-2 á útivelli í 9. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 12:30

Tár á hvarmi þegar Beckham kvaddi

Knattspyrnuheimurinn kvaddi einn sinn dáðasta son í gærkvöldi þegar David Beckham spilaði sinn síðasta leik á ferlinum. Meira
Fótbolti 19. maí 2013 06:00

Skrautlegt mark Sabrínu

Valur og ÍBV gerðu 3-3 jafntefli í 3. umferð Pepsi-deildar kvenna í frábærum fótboltaleik. Hér má sjá helstu atvik úr þeim leik sem enginn verður svikinn af. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 21:45

Santos hafnaði tilboði Barcelona í Neymar

Varaforseti brasilíska knattspyrnuliðsins Santos, Odilio Rodrigues, hefur staðfest að félagið hafi hafnað tilboði Barcelona í stórstjörnu sína, Neymar. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 20:51

Beckham kvaddi með stoðsendingu

David Beckham lék sinn síðasta knattspyrnuleik á ferlinu í kvöld þegar PSG sigraði Brest í París í kvöld og lagði upp eitt marka liðsins en Zlatan Ibrahimovic skoraði hin tvö mörkin. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 19:48

Risaskref hjá Margréti Láru

Márgrét Lára Viðarsdóttir lék allan leikinn fyrir Kristinstad sem tapaði 2-1 fyrir Linköping í dag. Margrét Lára lék þar sinn fyrsta heila leik í 7 mánuði þegar aðeins 7 vikur eru í Evrópumót landslið... Meira
Fótbolti 18. maí 2013 19:11

Jafntefli á Sauðárkróki

Annarri umferð 1. deildar karla í fótbolta lauk í kvöld á Sauðárkróki þar sem Tindastóll og Völsungur skildu jöfn 1-1. Fyrstu stig Völsungs í deildinni þar staðreynd. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 18:30

Emil og félagar upp í ítölsku A-deildina

Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona tryggðu sér í dag sæti í ítölsku A-deildinni í fótbolta. Liðið slapp með skrekkinn í loka umferðinni í dag. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 17:55

Jafnt á Leiknisvelli

Leiknir og KF gerðu 1-1 jafntefli í Breiðholti í 1. deild karla í fótbolta í dag. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 17:50

Þór/KA landaði fyrsta sigrinum

Íslandsmeistarar Þórs/KA unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Pepsí deild kvenna þegar liðið lagði HK/Víking í Fossvoginum 4-1. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 17:01

BÍ/Bolungarvík á toppinn

BÍ/Bolungarvík skellti Þrótti 2-1 á Torfnesvelli þegar liðin mættust í 1. deild karla í fótbolta í dag. BÍ/Bolungarvík er því eina liðið með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 15:56

Fjölnir stal stigi á Akureyri

Fjölnir sótti stig á Akureyri þegar liðið sótti KA heim í 1. deild karla í fótbolta í Atli Már Þorbergsson jafnaði metin á síðustu mínútum leiksins. Meira
Fótbolti 18. maí 2013 14:48

Kristianstad tapaði á heimavelli

Íslendingaliðið Kristianstad tapaði 2-1 á heimavelli gegn Linköping í úrvalsdeild kvenna í fótbolta í Svíþjóð í dag. Meira
Fótbolti 17. maí 2013 22:52

Falcao búinn að vinna sjö úrslitaleiki í röð - hefur aldrei tapað

Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao varð í kvöld spænskur bikarmeistari með Atlético Madrid en liðið vann þá 2-1 sigur á Real Madrid í framlengdum bikarúrslitaleik á Santiago Bernabéu. Meira
Fótbolti 17. maí 2013 22:12

Atlético vann Real í bikarúrslitaleiknum - Ronaldo fékk rautt

Atlético Madrid er spænskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Real Madrid í framlengdum bikarúrslitaleik á Santiago Bernabéu í kvöld. Brasilíumaðurinn Miranda skoraði sigurmarkið á 98. mín... Meira
Fótbolti 17. maí 2013 22:00

Ein sú allra besta verður áfram hjá Lyon

Lotta Schelin, ein allra besta knattspyrnukona heims, hefur gert nýjan þriggja ára samning við franska félagið Olympique Lyon en hún hefur spilað með Lyon-liðinu frá 2008 og á um næstu helgi möguleika... Meira
Fótbolti 17. maí 2013 10:56

Stelpurnar okkar bara á Eurosport?

Engin íslensk sjónvarpsstöð hefur enn keypt sýningarréttinn á Evrópumeistaramóti kvenna í knattspyrnu sem fer fram í Svíþjóð í sumar. Meira
Fótbolti 17. maí 2013 10:18

Klinsmann vill fá Aron í landsliðið

Jürgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins, hefur lýst því yfir að hann vilji fá Aron Jóhannsson í lið sitt sem allra fyrst. Meira
Fótbolti 17. maí 2013 09:31

Balotelli veit ekki hvernig hann skiptir út egginu

Mario Balotelli er kominn á Twitter. Loksins, segja sumir, enda notast hann við nafnið @finallymario. Hann á þó í vandræðum með að skipta um forsíðumynd á síðunni sinni. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Sænskur blaðamaður njósnaði um liðsuppstillingu Englands
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000