Viðskipti innlent

Sælkerahöll í Holtagörðum á næsta ári

Sæunn Gísladóttir skrifar
Sælkerahöllin á að vera í anda Torvehallerne og Borough Market þar sem matur, menning og umhverfi tvinnast saman.
Sælkerahöllin á að vera í anda Torvehallerne og Borough Market þar sem matur, menning og umhverfi tvinnast saman. vísir/afp
Margir áhugasamir hafa haft samband við Reiti fasteignafélag vegna þátttöku í uppbyggingu og rekstri á nýjum veitinga- og matarmarkaði í Holtagörðum. Þetta segir Friðjón Sigurðarson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs. Friðjón segir að hægt verði að opna markaðinn í fyrsta lagi á næsta ári.

Sælkerahöllin verður með básafyrirkomulag þar sem tólf fermetra og stærri rými eru í boði, með eða án bakrýma. Hún verður í anda Torvehallerne og Borough Market þar sem matur, menning og umhverfi tvinnast saman.

„Við erum að taka við umsóknum núna, það hafa nú þegar borist þó nokkrar. Tilgangurinn með því að auglýsa var að kanna áhugann og við erum að gera það hjá stórum og smáum rekstraraðilum,“ segir Friðjón. „Það er áhugi á þessu fyrirbæri en þetta er í mótun hjá okkur.“

Sælkerahöllinni er ætlað að höfða bæði til ferðamanna og heimamanna. Um 600 þúsund ferðamenn nýta sér árlega samgöngumiðstöðina í Holtagörðum og 14 þúsund íbúar eru í Laugarnes- og Laugaráshverfi, Heimum og Vogum.

Friðjón segir að ekki sé búið að finna markaðnum endanlegan stað í húsinu, né hversu stórt svæðið verður, það verði metið í september. Hann segir að það fari eftir eiginleika markaðarins hvenær hann verði opnaður.

„Þetta er öðruvísi nálgun en þegar við auglýsum rými til leigu. Þetta er í takt við þróunina núna. Þú vilt kannski kaupa einhverja vöru og heyra einhverja sögu um hana eða fá einhvern sérfræðing sem segir þér hvernig þú átt að nota hana, hvort sem það er sápa eða kjöt. Þessu eru neytendur að sækjast eftir,“ segir Friðjón Sigurðarson.

Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×