Innlent

Sækir veikan farþega á skemmtiferðaskipi

Atli Ísleifsson skrifar
Þyrla gæslunnar hefur verið send á vettvang.
Þyrla gæslunnar hefur verið send á vettvang. Vísir/Vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið að skemmtiferðaskipi til að sækja veikan farþega.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir til beiðni um aðstoð hafi borist rétt fyrir hádegi vegna alvarlega veiks farþega um borð í skemmtiferðaskipinu Astoria.

Skipið er á leið frá landinu og er nú statt um áttatíu sjómílur suðsuðaustur af Vestmannaeyjum.

Áætlað er að TF-LIF verði yfir skipinu upp úr klukkan 13 og mun þyrlan flytja sjúklinginn á sjúkrahús í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×