Innlent

Sækir slasaðan sjómann til Djúpuvíkur á Ströndum

Atli ÍSleifsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar. Vísir/Vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF fór nú rétt fyrir klukkan þrjú í loftið til að sækja slasaðan sjómann til Djúpuvíkur á Ströndum.

Í tilkynningu frá Gæslunni segir að hinn slasaði sé ekki í lífshættu en engu að síður var það mat þyrlulæknis að nauðsynlegt væri að sækja manninn.

Áætlað er að þyrlan verði komin á vettvang innan klukkustundar.  Veðuraðstæður á staðnum eru ágætar.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×