Erlent

Sádar halda áfram loftárásum sínum á Jemen

Atli Ísleifsson skrifar
Sádi-arabíski herinn gerði loftárásir á byggingar nærri flugvellinum í jemensku höfuðborginni Sanaa.
Sádi-arabíski herinn gerði loftárásir á byggingar nærri flugvellinum í jemensku höfuðborginni Sanaa. Vísir/AP
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa heitið því að gera „allt sem krefst“ til að koma í veg fyrir að forseti Jemens sé hrakinn frá. Loftárásir hersins gegn uppreisnarmönnum Húta í Jemen héldu áfram í dag.

Talsmaður jemenska heilbrigðismálaráðuneytisins segir að alls hafi 39 óbreyttir borgarar nú látist í loftárásum sádi-arabíska hersins á landið. Átta hafa látist í bardögum við flugvöllinn í Aden.

Loftárásir Sáda á stöðvar uppreisnarmanna Húta hófust aðfaranótt fimmtudaginn. Í frétt AFP segir að 21 uppreisnarmaður hið minnsta hafi látist í bardögum í suðurhluta Jemen, um fimmtán kílómetra norður af hafnarborginni Aden, helsta vígi Abd Rabbu Mansur Hadi forseta.

Forsetinn hefur þegar flúið land og mun funda með fulltrúum aðildarríkja Arababandalagsins á morgun.

Sádar standa fyrir loftárásunum sem beinast gegn Hútum sem hafa meðal annars náð höfuðborginni Sanaa á sitt vald. Að sögn sádí-arabíska ríkismiðilsins al-Arabiya er notast við um hundrað orrustuþotur og 150 þúsund hermenn í sókninni gegn Hútum.

Sókn Sáda nýtur stuðnings rúmlega tíu ríkja, þar á meðal Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Barein, Kúveit og Katar. Stjórnarherir Egyptalands, Jórdaníu og Súdan taka einnig þátt í sókninni, auk þess að her Marokkó hefur boðið fram aðstoð.

Bandaríkjastjórn segist hafa aðstoðað með því að veita Sádum upplýsingar og hernaðarráðgjöf. Tyrkir segjast jafnframt styðja sóknina.

Íransstjórn hefur hins vegar farið fram á að loftárásir verði stöðvaðar þegar í stað, auk þess að Kínastjórn hefur lýst yfir áhyggjum og hvatt til viðræðna milli deiluaðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×