Saadi Gaddafi, einn af eftirlifandi sonum Moammar Gaddafi fyrrum leiðtoga Lýbíu, hefur verið handtekinn í Niger og settur í stofufangelsi.
Þetta var gert í framhaldi af því að Saadi varaði opinberlega við því að ný uppreisn væri í vændum í Líbýu.
Saadi hefur dvalið í Niger síðan í september s.l. en þar í landi fékk hann pólitískt hæli af mannúðarástæðum eins og það var orðað.
Stjórnvöld í Niger segja að Saadi hafi brotið gegn skilyrðum þess að fá hæli í landinu með yfirlýsingum sínum. Stjórnvöld í Líbýu hafa krafist þess að fá Saadi framseldan.