Formúla 1

Sá þriðji í röð hjá Vettel í Suður-Kóreu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vettel og Horner fögnuðu vel í morgun.
Vettel og Horner fögnuðu vel í morgun. Nordicphotos/Getty
Þjóðverjinn Sebastian Vettel sigraði nokkuð örugglega í Suður-Kóreu kappakstrinum sem fram fór í morgun. Fernando Alonso, helsti keppinautur Vettel um heimsmeistaratitilinn, hafnaði í sjötta sæti.

Vettel, sem ekur fyrir Red Bull, ræsti fyrstur og skildi Lewis Hamilton á Mercedes, sem ræsti annar, eftir í rykinu strax á fyrsta hring. Hamilton skilaði sér í mark í fimmta sæti.

Mesta keppi Vettel kom frá liðsfélögunum hjá Lotus, Kimi Raikkonen og Romain Grosjean. Kom það helst til þar sem kalla þurfti út öryggisbílana tvívegis sem gaf hægar ökuþórum tækifæri til að minnka bilið í Vettel.

Raikkonen kom í mark rúmum fjórum sekúndum á eftir Vettel og Grosjen tæpum fimm. Nico Hulkenberg á Sauber hafnaði í fjórða sæti.

Vettel hefur nú 77 stiga forskot á Alonso í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra þegar fimm keppnum er ólokið. Þetta var þriðji sigur Vettel í röð í Suður-Kóreu og hans áttundi á tímabilinu.

Keppni ökuþóra

Sebastian Vettel 272

Fernando Alonso 195

Kimi Raikkonen 167

Lewis Hamilton 161

Mark Webber 130

Keppni bílasmiða

Red Bull Racing-Renault 402

Ferrari 284

Mercedes 283

Lotus-Renault 239

McLaren-Mercedes 81




Fleiri fréttir

Sjá meira


×