Erlent

Sá sem er grunaður um árásina í Berlín hafði verið undir eftirlit fyrr á árinu

Birgir Olgeirsson skrifar
Myndir af Anis Amri sem lögreglan í Þýskalandi notar til að lýsa eftir honum.
Myndir af Anis Amri sem lögreglan í Þýskalandi notar til að lýsa eftir honum. Vísir/EPA
Túnisinn sem er eftirlýstur vegna árásarinnar á jólamarkað í Berlín hafði verið undir eftirliti yfirvalda fyrr á þessu ári.

Maðurinn er 23 ára gamall og heitir Anis Amri. Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC greinir frá því að hann hafi verið undir eftirliti vegna gruns um að hafa lagt á ráðin um að fjármagna kaup á sjálfvirkum skotvopnum með ráni. Yfirvöld hættu hins vegar rannsókn sinni á Amri vegna skorts á sönnunargögnum.

Áður en hann kom til Þýskalands, þar sem hann sótti um hæli, hafði hann afplánað fjögur ár í fangelsi á Ítalíu vegna íkveikju og átti yfir höfði sér fangelsisvist í Túnis.

Nú er hans leitað víðs vegar um Evrópu.

Handtökuskipun var gefin út á hendur honum eftir að landvistarleyfi hans fannst í vörubílnum sem var ekið inn á jólamarkaðinn í Berlín síðastliðið mánudagskvöld. 12 létu lífið í árásinni og 49 særðust.

Yfirvöld í Þýskalandi hafa heitið 100 þúsund evrum, eða sem nemur tæpum 12 milljónum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag, fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku hans.

Hann er talinn hafa notast við sex nöfn í gegnum tíðina og einnig sagst ýmist vera frá Egyptalandi eða Líbanon.

Talið er að hann hafi særst í átökum við bílstjóra vörubílsins. Bílstjórinn fannst látinn í vörubílnum þegar lögreglan kannaði vettvanginn eftir árásina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×