Viðskipti innlent

SA lýsir yfir áhyggjum af launahækkunum stjórnenda

Randver Kári Randversson skrifar
Laun stjórnenda á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 13% á síðasta ári.
Laun stjórnenda á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 13% á síðasta ári. Vísir/Valli
Í nýrri samantekt Frjálsrar verslunar yfir tekjur stjórnenda á íslenskum vinnumarkaði kemur fram að laun þeirra hafi hækkað verulega á milli ára. Frjáls verslun segir laun æðstu stjórnenda 200 stærstu fyrirtækja landsins hafa hækkað um 13%.

Í fréttatilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins segir að þessar tölur séu nokkuð í takt við tölur Hagstofu Íslands yfir þróun launakjara stjórnenda á undanförnum árum. Þar megi sjá að heildarlaun stjórnenda hækkuðu á milli áranna 2012 og 2013 sem nemur 14% að jafnaði. Í samantekt Frjálsrar verslunar komi ennfremur fram að tekjur millistjórnenda hafi hækkað enn meira hlutfallslega.

Þegar litið er á launaþróun síðustu átta ára megi sjá að heildarlaun stjórnenda hafi þróast með nokkuð svipuðum hætti og heildarlaun á almennum vinnumarkaði. Þannig hafi heildarlaun á almennum vinnumarkaði hækkað um 45,2% frá árinu 2006 en laun stjórnenda um 43,6%. Í kjölfar efnahagskreppunnar haustið 2008 lækkuðu stjórnendur umtalsvert í launum og vera kann að sú lækkun hafi verið að ganga til baka síðastliðið ár til samræmis við þróunina á vinnumarkaði í heild.

Þrátt fyrir þetta valdi launahækkanir stjórnenda milli ára áhyggjum. Ljóst sé að umtalsvert launaskrið hafi orðið og hækkanir sem þessar rími afar illa við áherslur Samtaka atvinnulífsins um aukinn verðlagsstöðugleika og kaupmátt.  Stjórnendur íslenskra fyrirtækja verði að sýna gott fordæmi og undanskilja ekki sjálfa sig í þeim breytingum sem verið sé að reyna að innleiða á íslenskum vinnumarkaði, þar sem launaþróun stuðlar að auknum kaupmætti á grundvelli stöðugs verðlags.

Hér fyrir neðan má sjá mynd sem sýnir ársbreytingu heildarlauna á vinnumarkaði 2006-2013, annars vegar á vinnumarkaði alls og hins vegar hjá stjórnendum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×