Erlent

Sá hættir lífi sínu sem ekki flýr í burt

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar
Um fjögur þúsund Palestínumenn eru á flótta í norðurhluta Gasa en ísraelsk yfirvöld hafa tilkynnt að hver sá sem ekki flýr af svæðinu muni hætta lífinu.
Um fjögur þúsund Palestínumenn eru á flótta í norðurhluta Gasa en ísraelsk yfirvöld hafa tilkynnt að hver sá sem ekki flýr af svæðinu muni hætta lífinu. Vísir/AFP
Um fjögur þúsund Palestínumenn hafa flúið svæðin í norðurhluta Gasa en þangað færist vígvöllur mestu blóðsúthellinga sem átt hafa sér stað milli Palestínu og Ísraels í tvö ár.

Ísraelsmenn hafa nú í sex daga látið eldflaugum rigna yfir svæði Palestínumanna og samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Gasa hafa að minnsta kosti 160 manns látist. Meðal hinna látnu er sextán manna fjölskylda sem lést í árásinni síðastliðinn laugardag. Hafa aðfarirnar verið gagnrýndar af Navi Pillay, fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í mannréttindamálum.

Yfirvöld í Ísrael segja markmið árásanna vera að hæfa vígamenn og stjórnendur Hamas-samtakanna. Hvað sem því líður telja fulltrúar frá Sameinuðu þjóðunum að um 77 prósent þeirra föllnu séu almennir borgarar. Snemma í gær sprengdi ísraelski herinn upp mikilvægar bækistöðvar Hamas-liða en haft er eftir Manuel Hassassian, sendifulltrúa palestínskra yfirvalda í Lundúnum, að Hamas-liðar væru í flestum tilfellum óaðgreinanlegur hluti palestínskra borgara svo erfitt væri að uppræta samtökin með sprengjuárásum.

Flóttabylgjan nú kemur í kjölfar hótana ísraelsku stjórnarinnar en tilkynningu var dreift um svæðið úr lofti þar sem sagði að hver sá sem léti undir höfuð leggjast að koma sér á brott væri að hætta lífi sínu þar sem ísraelski herinn muni nú láta kné fylgja kviði. Fjöldi flóttamanna hefur fengið skjól í skóla sem alþjóðlegar herdeildir halda úti í grenndinni. Um átta hundruð manns með tvöfalt ríkisfang hafa farið til Ísraels en haft hefur verið eftir flóttamönnum á BBC að margir hefðu í engin hús að venda.

Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna hafa lýst því yfir að mikilvægt sé að koma á vopnahléi sem fyrst en fátt bendir til þess að þeir muni hafa erindi sem erfiði. Sérstaklega dvínuðu slíkar vonir þegar Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, tjáði fréttamönnum að tilraunir manna erlendis frá gætu ekki komið í veg fyrir að Ísraelsmenn beittu fullri hörku í þessum aðförum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×