Fótbolti

Sá félagana með tárin í augunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Jóhannsson, knattspyrnumaður með AZ Alkmaar og bandaríska landsliðinu, á sínum gamla heimavelli í Grafarvoginum.
Aron Jóhannsson, knattspyrnumaður með AZ Alkmaar og bandaríska landsliðinu, á sínum gamla heimavelli í Grafarvoginum. Fréttablaðið / Valgarður Gíslason
Grafarvogsbúinn Aron Jóhannsson hefur afrekað margt á þeim fjórum árum sem eru liðin frá því að hann yfirgaf Fjölni í 1. deildinni. Hann sló markamet í Danmörku, var seldur fyrir væna fúlgu til hollensks stórliðs og spilaði nú síðast með bandaríska landsliðinu á HM í Brasilíu.

Ákvörðun Arons um að gefa fremur kost á sér í bandaríska liðið en það íslenska var umdeild, enda sonur íslenskra foreldra sem voru við nám vestanhafs þegar drengurinn kom í heiminn fyrir tæpum 24 árum. Ákvörðunin kann enn að þykja umdeild en flestir fylktu sér að baki kappanum þegar út í alvöruna var komið í Brasilíu. Hann greindi frá þeirri upplifun í spjalli við Fréttablaðið í vikunni.

Aron var á hækjum þegar ég hitti á hann við Fjölnisvöllinn í Grafarvogi – hans gamla heimavöll. Hann lagðist undir hnífinn í Hollandi á þriðjudag vegna ofvaxtar í ökklabeini sem þurfti að fjarlægja. Aðgerðin gekk vel en minnstu munaði að meiðslin hefðu kostað hann ferðina til Brasilíu.

„Ég byrjaði að finna fyrir ökklanum í mars eða apríl og varð sífellt verri eftir það. Læknarnir hjá AZ vissu hvað þurfti að gera en sögðu að ég gæti þraukað ef ég vildi spila áfram. En til að verða hundrað prósent var aðgerðin nauðsynleg,“ lýsir Aron.



Fréttablaðið/Valli


Forráðamenn AZ vildu eðlilega að Aron færi í aðgerðina strax að tímabilinu loknu í Hollandi en sýndu því mikinn skilning að hann hefði lítinn áhuga á fórna því að taka þátt á HM.

„Þeir samþykktu að bíða með aðgerðina þó svo að ég myndi missa af fyrstu leikjum næsta tímabils. Ég er þeim þakklátur fyrir það.“

Til að bæta gráu ofan á svart meiddist Aron í nára skömmu fyrir HM. Undirbúningur Jürgens Klinsmann landsliðsþjálfara fyrir HM var mjög strangur sem reyndist Aroni erfitt eftir langt tímabil í Hollandi.

„Ég hafði spilað 50-60 leiki á tímabilinu og um tíma hélt ég að ég yrði sendur heim – að ég kæmist ekki í 23 manna lokahópinn. Ég fann fyrir miklum verk í náranum en var í raun smeykur við að kvarta of mikið undan honum og biðja um hvíld eða léttari æfingar,“ segir Aron en Klinsmann var með tvær æfingar á hverjum degi – stundum þrjár.



Fréttablaðið/Valli
Komu grátandi inn í klefann

Aron kom inn á sem varamaður í æfingaleik Bandaríkjanna gegn Aserbaídsjan þann 27. maí í San Francisco. Það var fyrsti æfingaleikur liðsins af þremur fyrir HM í Brasilíu og skoraði Aron síðara markið í 2-0 sigri.

„Eftir þann leik fóru verkirnir í náranum að versna. Við áttum næst leik gegn Tyrklandi í New York og ég gat ekki beitt mér fyllilega á æfingum. Ég kom ekkert inn á í þeim leik og eftir á sagði þjálfarinn mér að hann hefði viljað hvíla mig.“

Bandaríkin unnu alla þrjá æfingaleikina, líka þann síðasta gegn Nígeríu í Jacksonville.

„Ég átti að koma inn á en þegar ég var búinn að hita upp fann ég fyrir verk í hásininni. Hann hafði komið út frá ökklameiðslunum. Þetta var því nokkuð strembinn tími.“

Sjö leikmenn þurftu frá að hverfa úr æfingahópi Klinsmanns fyrir HM og þrátt fyrir baráttuna við meiðslin komst Aron í lokahópinn. Hann segir að það hafi verið erfitt að horfa á eftir félögum sínum sem þurftu að sitja heima.

„Á einni æfingunni sá ég að þjálfarinn var að taka út einn og einn leikmann og ræða við þá. Svo komu þeir inn í búningsklefa með tárin í augunum og þá áttaði maður sig á því hvað hafði gerst,“ lýsir Aron.

Vísir/Getty


„Tilfinningin var skrýtin. Maður var ánægður en þetta var leiðinlegt fyrir hina. Næsta klukkutímann voru menn fyrst og fremst að átta sig á því að sumir þeirra væru ekki að fara á HM. Maður vildi því ekki flagga gleðinni sjálfur.“

Aron segir að sér hafi gengið vel að mynda tengsl við aðra leikmenn í liði Bandaríkjanna og aldrei fundist að hann væri utanaðkomandi.

„Alls ekki. Það er kannski nýtt fyrir Íslendingum að knattspyrnumenn með tvöfalt ríkisfang velji á milli landsliða en við vorum alls sjö í bandaríska liðinu sem áttum rætur að rekja til annarra landa. Bandaríkjamenn eru yfirleitt opnir og það er auðvelt að kynnast þeim. Mér var því tekið bara eins og ég er.“



Vísir/Getty


Enginn tími fyrir stress


Fyrsti leikur Bandaríkjanna í lokakeppninni sjálfri var gegn Gana. Handrit leiksins hefði þess vegna getað verið samið í Hollywood. Clint Dempsey kom Bandaríkjunum yfir eftir 29 sekúndur en Ganverjar jöfnuðu þegar skammt var til leiksloka. Þá kom varamaðurinn John Brooks til sögunnar og tryggði þeim bandarísku dramatískan sigur. 

Sigurmarkinu var svo vel fagnað vestanhafs að það var valið besta íþróttaaugnablik ársins á verðlaunaafhendingu ESPN-sjónvarpsstöðvarinnar [ESPYS] í vikunni.

Aron kom inn á sem varamaður í þessum leik líkt og frægt er eftir meiðsli Jozys Altidore strax á 20. mínútu. Aron hafði haft það á tilfinningunni dagana á undan að hann fengi að spila í leiknum. 

„Ég var ekkert búinn að spila í síðustu æfingaleikjunum vegna meiðsla en síðustu tvo dagana fyrir þennan leik leið mér mjög vel og var góður á æfingum,“ lýsir Aron.



Vísir/Getty


„Ég og Chris [Wondolowski] vorum sóknarmennirnir á bekknum og þegar Jozy meiddist litum við hvor á annan. Okkur brá en fannst best að hefja upphitun. Ég var bara búinn að skokka eina ferð þegar það var kallað á mig. Þá klæddi ég mig úr vestinu og fór inn á. Ég hafði því engan tíma til að hugsa um þetta. Sem var gott því þá hafði maður ekki tíma til að verða stressaður.“

Aron segist hafa fengið gæsahúð þegar honum var skipt inn á en um leið varð hann fyrsti Íslendingurinn til að spila í lokakeppni HM í knattspyrnu.

„Það var svo mikið adrenalín í líkamanum að ég fann ekkert fyrir meiðslunum í þessar 70 mínútur sem ég spilaði. Ég hljóp úr mér lungun enda þurftum við mikið að verjast í leiknum.“

Hann segist sáttur við frammistöðu sína þó svo að hann hafi ekki fengið úr miklu að moða sem sóknarmaður.

„Eftir á að hyggja fannst mér ekki mikið sem ég hefði getað gert betur, enda vörðumst við allan leikinn. Það kom augnablik þar sem ég hefði mögulega komist einn í gegn en það þýðir ekkert að gráta það núna.“



Vísir/Getty


Tímasetning meiðslanna verst


Það var ljóst að Altidore myndi ekki taka frekari þátt í riðlakeppninni. Aron, eins og flestir Íslendingar, leyfði sér að vona að hann fengi tækifæri í byrjunarliðinu í næsta leik. En það átti ekki að verða. 

„Þegar undirbúningur hófst fyrir leikinn breytti þjálfarinn um kerfi og ákvað að spila bara með einn framherja. Hann var með Dempsey einan uppi á toppi og ég áttaði mig strax á því að ég yrði ekki í byrjunarliðinu. Þetta var þremur dögum fyrir leikinn.“

Hann viðurkennir að það hafi verið vonbrigði enda fáir knattspyrnumenn sáttir við að þurfa að sitja á bekknum. 

„Ég skildi afstöðu þjálfarans. Ég var ekki 100 prósent á æfingum og ég veit að ég er ekki það góður að ég geti verið í byrjunarliðinu á HM þegar málin standa þannig. Mesta svekkelsið var tímasetning meiðslanna – að ég gat ekki upplifað HM algjörlega heill heilsu.“

Aron spilaði ekki meira á HM en í þessum eina leik. Bandaríkin féllu úr leik í 16-liða úrslitum eftir hetjulega baráttu í framlengdum leik gegn Belgíu og sneru aftur til sinna heima sem þjóðhetjur. 

„Ég fékk smjörþefinn af þessu og veit hversu ótrúlegt það er að spila á HM. Auðvitað hefði ég viljað spila meira en ég á vonandi meira eftir. Ég stefni að því að spila að minnsta kosti á tveimur heimsmeistaramótum til viðbótar,“ segir hann og á þar við keppnina í Rússlandi eftir fjögur ár og svo hina umdeildu keppni í Katar árið 2022.





Ætlar að festa sig í sessi


Næsta stóra verkefni bandaríska liðsins verður úrslitakeppni Copa América árið 2016. Þessi sögufræga keppni, sem er álfukeppni Suður-Ameríku, fer þá í fyrsta sinn fram utan álfunnar en hún verður haldin í Bandaríkjunum – og það á 100 ára afmælisári sínu.

„Það verður alveg svakaleg keppni,“ segir Aron og það er greinilegt að hann hlakkar mikið til. „Ég stefni á að vera búinn að festa mig í sessi sem byrjunarliðsmaður í aðdraganda þess móts.“

Það má búast við því að Bandaríkjamenn muni áfram fylgjast með knattspyrnulandsliði sínu af áhuga, vonandi með Aron innanborðs. Og hann gerir sér grein fyrir því að það er vel fylgst með honum á Íslandi.

„Ég fann fyrir stuðningnum frá Íslandi úti í Brasilíu og hann var meiri en ég átti von á. Það var nokkuð um neikvæð viðbrögð þegar ég valdi bandaríska landsliðið á sínum tíma en ég fann fyrir mun meiri jákvæðni í minn garð eftir því sem nær dró keppninni. Ég var ekki lengur svikarinn og fannst að menn væru stoltir af mér.“

Hann segir að hann taki neikvæða umræðu ekki inn á sig. „Ef maður á lélegan leik sleppur maður því bara að fara á Twitter,“ segir hann í léttum dúr. „En það þýðir ekkert að taka neikvæða umfjöllun inn á sig. Þá myndi maður aldrei endast í þessu sporti.“

Og spurður hvort hann hafi nokkru sinni séð eftir því að hafa valið bandaríska landsliðið fram yfir það íslenska stendur ekki á svarinu. Það er skýrt. „Nei. Svarið er einfalt.“

Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×