Körfubolti

Sá besti tók ömmu-vítaskot þegar Golden State vann síðast | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rick Barry á vítalínunni.
Rick Barry á vítalínunni. Vísir/Getty
Rick Barry var aðalmaðurinn þegar Golden State Warriors varð síðast NBA-meistari í körfubolta árið 1975 en félagið komst í nótt aftur í lokaúrslitin eftir 40 ára bið.

Stephen Curry og félegar voru með besta árangurinn í deildarkeppninni og hafa síðan unnið 12 af 15 leikjum sínum á leið sinni inn í úrslitaeinvígið.

Stuðningsmenn Golden State Warriors hafa beðið í 40 ár eftir því að liðið komist aftur í lokaúrslit NBA. Golden State Warriors vann þá 4-0 sigur á Washington Bullets.

Rick Barry var valinn besti leikmaður lokaúrslitanna en hann var með 28,2 stig, 6,1 stoðsendingu, 5,5 fráköst og 2,9 stolna bolta að meðaltali í úrslitakeppninni.

Rick Barry var frábær vítaskytta en hann notaði afar sérstakan skotstíl í vítunum. Barry, sem nýtti meðal annars 91,8 prósent víta sinna í úrslitakeppninni 1975, tók ömmu-skot á vítalínunni.

Rick Barry spilaði í NBA-deildinni frá 1965 til 1980 en hann vann bara einn titil á ferlinum. Barry var átta sinnum valinn í Stjörnuliðið og fimm sinnum í úrvalslið tímabilsins.

Tveir synir hans hafa spilað í NBA-deildinni, þeir Brent Barry og Jon Barry, en Brent Barry varð tivsvar sinnum NBA-meistari með San Antonio Spurs (2005, 2007).

Hér fyrir neðan má sjá myndband með Rick Barry þegar hann varð NBA-meistari með Golden State Warriors fyrir 40 árum. Þar má meðal annars sjá hann raða niður vítaskotum með ömmu-stílnum sínum.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×