Innlent

Rýna í kosningamyndböndin

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Stjórnmálaflokkar styðjast við samfélagsmiðla í auknum mæli til þess að koma stefnu sinni á framfæri en algengt er að framboð birti myndbönd þar sem frambjóðendur eða stefna flokksins er kynnt. Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður fór og hitti Andrés Jónsson almannatengil og Berglindi Pétursdóttur starfsmann auglýsingastofunnar NM sem rýndu í nokkrar auglýsingar. 

Kosið verður til Alþingis á laugardaginn og hafa framboð að undanförnu birt auglýsingar í formi mynda og myndbanda  á samfélagsmiðlunum Facebook – nú þegar kosningabaráttan er á lokametrunum.

Myndböndin eru misjöfn eins og þau eru mörg og hafa þau notið mismikilla vinsælda meðal almennings. Í spilaranum hér að ofan má sjá skoðanir Andrésar og Berglindar á nokkrum myndböndunum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×