Innlent

Rýming á Patreksfirði endurmetin með morgninum

Hús á reit 4 voru rýmd í gær.
Hús á reit 4 voru rýmd í gær. Mynd/Vedur.is
Rýming nokkurra húsa á Patreksfirði stendur enn og þurftu nokkrir tugir íbúa þeirra að gista annarsstaðar í nótt. Lítið snjóaði þar um slóðir í nótt og verður staðan endurmetin með morgninum, en ekki þurfti að rýma fleiri hús en rýmd voru í gær. Hættustig er enn á Patreksfirði og óvissustig þar í grennd.

Mikil snjóflóðahætta er á norðanverðum Vestfjörðum og utanverðum Tröllaskaga, en nokkur flóð hafa fallið að undanförnu í grennd við snjóflóðamannvirki við Siglufjörð. Ekki hafa borist fregnir af snjóflóðum í nótt, enda enda myrkur og engin umferð um vegi á Vestfjörðum, sem flestir voru orðnir ófærir í gærkkvöldi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×