Erlent

Rýma ráðhúsið vegna sprengjuhótunar

Atli Ísleifsson skrifar
Ráðhúsið í Kaupmannahöfn.
Ráðhúsið í Kaupmannahöfn. Vísir/AFP
Lögregla í Kaupmannahöfn hefur rýmt ráðhúsið í borginni eftir að sprengjuhótun barst í morgun.

Danskir fjölmiðlar greina frá því að lögregla hafi girt af húsið og framkvæmi nú leit innandyra. Enn sem komið er hefur ekkert fundist.

Mikill fjöldi lögreglumanna eru nú á Ráðhústorginu sem hefur verið girt af að hluta.

Í frétt danska ríkisútvarpsins á sprengjuhótunin að hafa borist í gegnum spjallsvæði á netinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×