Íslenski boltinn

Ryder: Hann er dæmigerður Brasilíumaður

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Thiago Borges Pinto skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Þrótt en hann er 27 ára Brasilíumaður sem hefur lengst af spilað í Danmörku. Hann var síðast á mála hjá B-deildarliðinu Skive en spilaði einnig með Esbjerg, AB og Vestsjælland.

„Þetta er mjög spennandi og Thiago er afar áhugaverður leikmaður,“ sagði Ryder í samtali við Vísi eftir fundinn í dag. „Þetta er leikmaður í afar háum gæðaflokki og hefur bæði mikla reynslu og er á góðum aldri.“

Sjá einnig: Þróttur semur við Brasilíumann

Thiago leikur sem sóknartengiliður, er svokölluð tía, og tekur Ryder undir að það sé spennandi tilhugsun að fá brasilískan sókndjarfan miðjumann í liðið. „Hann er góður á boltann, snöggur og hæfileikaríkur. Hann skorar bæði og leggur upp og dæmigerður Brasilíumaður að því leyti. Ég er afar spenntur fyrir því að sjá hann spila.“

„Thiago er leikmaður sem getur skapað eitthvað úr engu. Það ætti að reynast okkur mjög vel í jöfnum leikjum og þar getur hann fært liðinu eitthvað sem enginn annar getur eins og staðan er núna. Það er eitthvað sem öll lið vilja.“

Hann segir þó að Thiago muni ekki þurfa að bera lið Þróttar á herðum sér heldur verða hluti af sterkri liðsheild. „Við erum með marga skapandi og sókndjarfa leikmenn í okkar liði en hann verður klárlega lykilmaður í Þrótti.“

Miðjumaðurinn Oddur Björnsson er með slitið krossband og spilar ekki með Þrótti í sumar og þá segist Ryder að liðið sé einnig að leita að vinstri bakverðil. Það eru því frekari tíðinda að vænta af leikmannamálum liðsins áður en tímabilið hefst í vor.

„Oddur var lykilmaður á miðjunni og við þurfum að fá einhvern fyrir hann. Þess fyrir utan er það mikilvægt fyrir alla nýliða að styrkja sig og við erum ekki hættir því.“

Ryder segir enn fremur að Þróttarar ætli sér ekki að vera í fallbaráttu í sumar. „Við viljum festa okkur í sessi og ekkert þurfa að ræða um fallbaráttu. Við viljum fá leikmenn sem geta gert okkur að slíku liði. Við munum ekki stefna á eitthvað sérstakt sæti heldur einbeita okkur að því að ná ákveðnum stöðugleika. Það er lykilþáttur hjá okkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×