Innlent

RÚV braut lög: Létu kosta dagskrárliði sem töldust ekki íburðarmiklir

Birgir Olgeirsson skrifar
Skjáskot af þeim þáttum sem voru kostaðir.
Skjáskot af þeim þáttum sem voru kostaðir. RUV.is
Ríkisútvarpið braut gegn lögum um Ríkisútvarpið með kostun á dagskrárliðunum Árið er - Upprifjun á Eurovision, Popp og Rokksaga Íslands, Vikan með Gísla Marteini, Hraðfréttir Útsvar, Óskalög þjóðarinnar og Íþróttalífið.

Þetta er niðurstaða fjölmiðlanefndar sem féll frá sektarákvörðun í máli þessu með vísan til þriðju málsgreinar sautjándu greinar laga um Ríkisútvarpið. Þar kemur fram að falla megi frá sektarákvörðun teljist brot óverulegt eða af öðrum ástæðum ekki talin þörf á beitingu sekta. Í slíku tilviki er fjölmiðlanefnd heimilt að ljúka málsmeðferð með útgáfu álits sem birt er á heimasíðu hennar.

Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið er því óheimilt að afla tekna með kostun dagskrárefnis. Þó má víkja frá þeirri reglu við útsendingu íburðarmikilla dagskrárliða til að mæta útgjöldum við framleiðslu eða kaup á sýningarrétti. Þá má einnig víkja frá þessari reglu við útsendingu innlendra íþróttaviðburða og umfjöllun um þá.

Kvörtunin vegna þessara dagskrárliða barst frá 365 miðlum en að mati fjölmiðlanefndar féll enginn þessara þátta undir hugtakið íburðarmikill dagskrárliður í skilningi laga um Ríkisútvarpið.

Ástæðan fyrir því að fjölmiðlanefnd ákvað að falla frá sektarákvörðun í þessu máli er sú að Ríkisútvarpið féllst á að gera grundvallarbreytingu á skilmálum RÚV um auglýsingar sem mun fela í sér töluverða tekjuskerðingu fyrir félagið, miðað við fyrri framkvæmd.

Sjá ákvörðun fjölmiðlanefndar í heild hér.



Árið er var kostað af Cheerios og Vodafone, Popp og Rokksaga Íslands var kostað af Gull og Hringdu, Vikan með Gísla Marteini var kostuð af Heimkaup og Húsgagnahöllinni, Hraðfréttir voru kostaðar af Nathan Olsen og Heimkaup og Íþróttalífið var kostað af Netgíró.




Tengdar fréttir

Glæpir RÚV margborga sig

Fengu 250 þúsund króna sekt fyrir brot sem ætla má að gefi af sér hátt í fjórar milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×