Innlent

Rúta valt á Snæfellsnesvegi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þrír farþeganna voru fluttir með sjúkrabifreiðum á Landspítalann í Fossvogi.
Þrír farþeganna voru fluttir með sjúkrabifreiðum á Landspítalann í Fossvogi. Vísir/loftmyndir
Rúta valt á Snæfellsnesvegi við Urriðaá um fimmleytið í dag. Þetta kemur fram á Facebook síðu Lögreglunnar á Vesturlandi. Slökkvilið, sjúkrabílar og lögregla fóru á vettvang.

Þrír farþeganna voru fluttir með sjúkrabifreiðum á Landspítalann í Fossvogi en meiðsl þeirra virtust að sögn lögreglu vera minniháttar.

Aðrir voru fluttir með rútu á Akranes þar sem Rauði krossinn tók á móti þeim í aðstöðu Björgunarfélags Akraness.

45 manns voru í rútunni en allir farþegar voru erlendir ferðamenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×