Innlent

Rúta sat föst í Steinsholtsá

Samúel Karl Ólason skrifar
Traktor var notaður til að draga rútuna á þurrt land.
Traktor var notaður til að draga rútuna á þurrt land. Vísir/Vilhelm/Loftmyndir
Fimmtán farþegar sátu fastir í rútu í Steinholtsá á Þórsmerkurleið í morgun. Dautt var á rútunni, farið var að flæða inn í hana auk þess sem áin gróf hratt undan henni.

Samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu voru björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli Landeyjum kallaðar út auk þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Landvörður úr Langadal á traktor og staðarhaldarar Volcano Huts í Húsadal komu ferðamönnunum til bjargar. Þeim tókst að ná fólkinu úr rútunni og henni sjálfri úr ánni, rétt í þann mund sem björgunarsveitir komu á staðinn. Þá um hálfri klukkustund eftir að aðstoðarbeiðni barst.

Engin slys urðu á fólki.

„Nokkuð mikið er í ám og lækjum á svæðinu þessa dagana og er ferðafólk hvatt til að gæta ítrustu varúðar þegar þvera þarf straumvatn,“ segir í tilkynningu Landsbjargar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×