Lífið

Rússneskur þingmaður segir Rússa eiga að íhuga að draga sig úr Eurovision

Birgir Olgeirsson skrifar
Jamala fagnar hér sigri í Eurovision.
Jamala fagnar hér sigri í Eurovision. Vísir/Getty
Rússar eru margir hverjir sagðir æfir vegna úrslita söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision. Fulltrúi Úkraínu, Jamala, stóð uppi sem sigurvegari þvert á spá veðbanka sem höfðu spáð Rússum sigri og Ástralíu öðru sæti. Svo fór að ástralski flytjandinn hafnaði í öðru sæti en sá rússneski í þriðja.

Áhorfendur voru hrifnastir af rússneska laginu en það fékk 361 stig úr símakosningu. Úkraínska lagið fékk 323 atkvæði úr símakosningunni en fékk hins vegar 211 stig frá dómnefndum. Rússar fengu hins vegar aðeins 130 stig frá dómnefndunum.

Rússneska framlagið fékk ekkert stig frá úkraínsku dómnefndinni og þá fékk úkraínski flytjandinn ekkert stig frá rússnesku dómnefndinni. Hins vegar fékk úkraínski flytjandinn 10 stig frá rússnesku þjóðinni í gegnum símakosninguna og rússneski flytjandinn 12 stig frá úkraínsku þjóðinni.

Lag Jamölu, 1944, fjallaði Stalín, Krímsaga og þjóðernishreinsanir á því svæði. Jamala er Tartari en hún tileinkaði lagið langömmu sinni og fimm börnum hennar sem voru flutt af sovéskum hermönnum frá Krímskaga.

Sergey Lazarev flutti lagið You Are The Only One fyrir hönd Rússa í Eurovision í ár.Vísir/Getty
Fyrir keppnina höfðu Rússar farið fram á að Jamölu yrði bannað að flytja lagið í keppninni því það innihélt pólitískan boðskap, sem er bannað samkvæmt reglum Eurovision-keppninnar.

Svo fór að forsvarsmenn keppninnar leyfðu Jamölu að flytja það því texti lagsins væri byggður á sögulegum staðreyndum, en ekki atburðum dagsins í dag.

Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC hefur eftir sjónvarpsmanninum, höfundinum og Eurovision-sérfræðingnum John Kennedy O´Connor að þessi niðurstaða væri vonbrigði fyrir sig. „Þessi keppni á ekki að vera pólitísk og ég er næstum því reiður yfir því að henni hafi verið breytt á þann hátt, þrátt fyrir að reglurnar séu mjög skýrar.“

Hann sagði að þrátt fyrir að þriðja sætið sé viðundandi árangur fyrir Rússa þá hljóti þeir að vera afar svekktir.

Þá hefur BBC eftir Alasdair Rendall, formanni breska Eurovision-aðdáendaklúppsins, að sigur Jamölu hefði kallað fram blendin viðbrögð. „Margir eru mjög hrifnir af rödd hennar og atriðinu sjálfu. Hins vegar benda aðrir á að lagið hafi unnið vegna pólitísks boðskaps en ekki vegna gæða lagsins.“

Forseti Úkraínu, Petro Poroshenko, var að vonum afar ánægður með niðurstöðuna og sagði rödd hennar hafa hreyft við Evrópu. „Sannleikurinn, eins og alltaf, sigraði að lokum.“

Á vef Huffington Post er haft eftir Konstantin Kosachev, þingmanni í Rússlandi, að pólítikin hafi sigrað í Eurovision þetta árið. „Pólitísk afskipti höfðu betur gegn sanngjarnri keppni.“

Franz Klintzevich, þingmaður í Rússlandi, sagðist eiga von á að Úkraínumenn muni nota keppnina á næsta ári til að koma höggi á Rússa. „Ef ekkert breytist í Úkraínu, þá held ég að við ættum að draga okkur úr keppni.“ 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×