Erlent

Rússneskt geimfar steypist stjórnlaust til jarðar

Atli Ísleifsson skrifar
Geimfarið Progress M-27M.
Geimfarið Progress M-27M. Vísir/EPA
Ómannað rússneskt geimfar á leið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar með birgðir steypist nú stjórnlaust til jarðar eftir að samband við farið rofnaði.

Farinu var skotið á loft í Kasakstan í gær en samband við geimfarið rofnaði nokkru síðar.

Rússneska fréttastofan TASS greinir frá því að vísindamenn vinni að því að ná sambandi við Progress M-27M en að líklegast sé að það brenni upp þegar það nær inn í gufuhvolf jarðar.

Næg­ar birgðir eru um borð í geimstöðinni svo sex áhafnarmeðlimir þurfa ekki að hafa sérstakar áhyggjur af birgðaskorti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×