Sport

Rússneskir þjálfarar sem láta íþróttamenn nota ólögleg lyf eru enn að störfum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Rússar eru líklega ekki færir um að uppræta kerfisbundna lyfjamisferlið sem hélt frjálsíþróttafólki þjóðarinnar frá Ólympíuleikunum í Ríó á síðasta ári. Þetta segir rannsóknarblaðamaðurinn sem kom upp um spillingu Rússanna en hann hélt erindi á ráðstefnu ÍSÍ og ÍBR um lyfjamál í Háskólanum í Reykjavík í síðustu viku.

Þjóðverjinn Hajo Seppelt gerði fræga heimildamynd fyrir ARD árið 2014 þar sem hann sannaði kerfisbundið og ríkisstyrkt lyfjamisferli í rússneskum frjálsíþróttum. Út frá því fór í gang mikil rannsóknarvinna sem varð til þess að fjölda rússneskra íþróttamanna, þar á meðal nær öllu frjálsíþróttafólki Rússlands, var meinuð þátttaka á ÓL í Ríó í fyrra.

„Þetta er nánast án vafa stærsta kerfisbundna lyfjamisferli sögunnar í frjálsíþróttum sem vitað er núna að teygir anga sína inn í fleiri íþróttir í Rússlandi. Það er bara hægt að bera þetta saman við lyfjakerið í Austur-Þýskalandi sem við upplifðum árið 1989,“ segir Seppelt í viðtali við íþróttadeild.

Þrátt fyrir uppljóstranir Seppelts og McClaren-skýrsluna sýndi ný heimildamynd ARD um síðustu helgi að ekki margt hefur breyst hjá Rússunum. Sumir þjálfarar, sem vitað er að dæla lyfjum í íþróttamenn sína, eru enn að stöfum.

„Það sýnir á ný hversu djúpt í rússneskt íþróttalíf þetta lyfjamisferli og spilling nær. Þetta er í raun lyfjamenning sem hefur átt sér stað í ár og áratugi,“ segir hann, en eru Rússar þá ekki hæfir til að kljást við þetta vandamál ef þeir hafa áhuga á því yfir höfuð?

„Kannski er rússneska sambandið ekki hæft eða hreinlega getur ekki leyst þetta vandamál. Það sem gerist í Moskvu er eitt en svo er það sem gerist í Síberíu eða Ural-héraði allt annað. Rússar geta ekki stjórnað þessu og fólkinu fyrir utan Moskvu er alveg sama um hvað höfuðborgin segir því að gera.“

„Einhver sem er vanur að vinna svona alla sína ævi sem þjálfari og kannski áður sem íþróttamaður heldur kannski að lyf séu nauðsynleg fyrir íþróttir. Hvernig er hægt að breyta þeim hugsunarhætti á vikum eða mánuðum? Það er einfaldlega ekki hægt,“ segir Hajo Seppelt.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×