Fótbolti

Rússneska mínútan: Ekki í boði að vera að sóla sig í garðinum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rússneska mínútan var á sínum stað í Sumarmessunni í kvöld en Rússneska mínútan hefur vakið mikla lukku í þættinum.

Í Rússnesku mínútunni er boltinn sendur yfir til Rússlands þar sem fréttamenn Stöðvar 2 ytra taka við boltanum og fjalla um ýmsar skemmtilegar hliðar.

Í þættinum í kvöld var Arnar Björnsson í sólbaði í strandbænum Kabardinka, þar sem fjölmiðlamenn dvelja og strákarnir okkar æfa, og lét vel um sig fara.

Henry Birgir Gunnarsson og Kolbeinn Tumi Daðason voru ekki á sama máli og hentu okkar manni út í laugina. Þeir héldu svo aftur til vinnu.

Sjón er sögu ríkari en þetta skemmtilega innslag má sjá efst í fréttinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×